Jörð - 01.06.1943, Síða 5
• nefndri grein, með „hæfilegu“ yfirlæti, á me'ðan óséð er, hvernig
bau mál ráðast. Og það er ekkert sérstakt við það að athuga annað
en það, að þó að slíkt og þvílíkt megi liklega heita nokkuð eðlileg
varúðarráðstöfun af margra hálfu, þá er óneitanlega stórmann-
lcgra og heillavænlegra að reyna i fullri alvöru að gera sér grein
fyrir þeim rökum, sem fram eru lögð i greininni — og draga hrein-
lega og hispurslaust af þeim þær ályktanir, er réttar virðast verai
og láta sér lynda útkomuna í því trausti, að eftir allt saman sé
sannleikanum einum treystandi og honum sé alltaf vel treystandi
°g að enginn þurfi að skammast sin fyrir að aðhyllast liann og
að það sé þrátt fyrir allt notalegt að vita með sjálfum sér, að mað-
ur sé meðal þeirra, er aðhylltust hann sjálfkrafa í upphafi og drógu
aðra með sér til viðurkenningar á honum.
Að þvi er snertir greinina „Bandaríkin og vér“ sérslaklega, þá
er þess vel gætandi, að þar er ekki tekið ftam, hvað vér eigum að
gera til að rækja skyldu vora gagnvart Bandaríkjamönnmn sem
náúngum vorum, vinum og varnarmönnum. Það er sagt þar, að ef
vér kærum oss um að fá að vita það, þá muni oss verða það ljóst
— ■ smámsaman Ijósara og Ijósara.
Þá skal þeirri bendingu snúið til þeirra lesenda vorra, sem það
kynni að henda (eða hafa hent) að heyra talað um, að JÖRÐ sé...
o.s.frv., að hugleiða, hvort umræðandi muni ekki hafa horn i siðú
JARÐAR vegna einhvers flokks eða fyrirtækis, er kynni að lita
á hana sem óþægan ljá í þúfu. JÖRÐ liefur sagt afdráttarlaust mein-
ingu sína um fleira en afstöðu íslendinga til Bandaríkjamanna! Og
það eru m.a.s. kannski fleiri en þeir, er sjálfa svíður undan sann-1
leiksorði JARÐAR, sem finnst hún í veginum fyrir sér!
Að lokum nokkur orð til hinna vafalaust mörgu, er af góðurrt
hvötum, en (að'voru áliti) minni skilningi en skyldi, snúast meira
og minna öndverðir gegn skoðunum þeim, sem fram eru settar í
greininni „Bandaríkin og vér“, einkum þeirri, að vér Íslendingaí1
eigum ráðnum huga að stunda af alúð og samkvæmni vinátt-
una við Bandarikjamenn. Þeim vill JÖRÐ leyfa sér að benda á
eftirfarandi atriði: Málefni standa þannig, að það er óumflýjan-
legt, að íslenzka þjóðin og Bandarikjamenn hafi mikið saman að
sælda á næstu árúm (a.mk.), ekki að eins vegna dvalar herliðs
þeirra hér, heldur og yfirleitt. Nú vita allir, að Bandarikjamenn
eru áhrifasterk þjóð á svo að segja öllum sviðum, að sú þjóð ú
flest til innan sinna vébanda bæði til hins betra og verra, að húú
er voldugasta þjóð heimsins og að liún tekur nokkuð geyst hverja
stefnu, sem hún tekur. Af þessu virðist ekki ýkjavandasamt að
úraga þá ályktun, að það væri óhyggilegt og gæti haft á ýmsan
bátt vondar afleiðingar fyrir þjóð i aðstöðu íslendinga að taka
sér ekki ákveðið fyrir hendur að reyna að kynnast bandariskú
Jörð 99