Jörð - 01.06.1943, Blaðsíða 10
langflestir skynja það sem land hins taumlausa ofbeldis
og fulltrúa þess tortímandi miskunnarleysis, sem einskis
svífst. Holland, Belgía, Noregur, Danmörk, Pólland, Tékkó-
slóvakía, Júgóslavía, Grikkland eru blöðin, þar sem saga
þeirrar lortímingar er skráð.
AÐ er ekki langt síðan enn mátti lesa í blöðum og
tímaritum Bandamanna skoðanir á eðli þessarar
styrjaldar og afstöðu þýzku þjóðarinnar, sem voru leif-
ar þessarar gömlu blekkingar. Ég á hér einkum við þá
skoðun, að ekki mætti rugla saman Nazistum og þýzku
þjóðinni; styrjöldin væri háð gegn þeim, en eklci þjóð-
inni. Ég á hér enn fremur við þá skoðun, að af hinum
gömlu ríkjum Þýzkalands væri það einkum Prússland,
sem þyrfti að siða. Það yrði að kveða hernaðaranda Prúss-
lands niður. Prússlandi ætti ekki að sýna neina vægð,
en við hin ríki Þýzkalands ætti að beita mannúðlegri
lipurð.
Þessar raddir eru nú óðum að þagna í löndum Banda-
manna, og er það meira en skaðlaust, því að þessar skoð-
anir eru bygðar á furðulegum og hættulegum misskiln-
ingi. Hitt er svo annað mál, hvort annar jafnhættulegur
misskilningur kemur ekki í hins stað. Það verður aldrei
of greinilega tekið fram, að hvaða kjör og framtíðar-
skipulag, sem Þýzkalandi verða slcöpuð, ef Bandamenn
sigra, þá nær það engri átt að gera Prússland að synda-
selnum, og líta svo á, að hin þýzku ríkin liafi verið sak-
laus fórnardýr þess. Sá andi, sem rekið hefur Þýzkaland
til þess að skapa sér það stjórnarfar, sem það býr nú
við, og skapa sér og öðrurn þjóðum þau örlög, sem nú
eru að koma fram, hefur verið óþrotlega að verki öldum
saman og engan veginn bundinn við Prússland. Uppi-
stöðuhugmyndirnar í þjóðarmarkmiðum Þýzkalands, eins
og til dæmis Platz in der Sonne, Lebensraum, Deutsche
Kultur, Deutsches Wesen og Herrenvolk, — rúm i sól-
skininu, lífsrými, yfirburðir þýzkrar menningar, þýzkt
eðli og drottinþjóð, — eru fjarri því að vera eingöngu
104 JÖRÐ