Jörð - 01.06.1943, Qupperneq 25
sé rétt, þegar breyting á stjórnarhögum landsins er í
vændum, að athugað sé, hvort stjórnskipulag Banda-
i'ikjanna, sem virðist hafa gefizt vel þar í landi, sé ekki
að einhverju leyti þannig úr garði gert, að eitthvað geti
orðið þar til fyrirmyndar fyrir fsland. fslendingar eiga
nú mest skipti við Bretland og Bandaríkin, sem eru ein-
mitt öndvegisþjóðir lýðræðisins, livor með sínu móti. Þess
niá vænta, að sambandið milli íslands og þessara vold-
ugu vina þess verði náið á komandi árum, ekki ein-
göngu að því, er verzlun og viðskijiti snertir, lieldur einn-
ig frá menningarlegu sjónarmiði. íslendingar munu þá
kvnna sér ýmis atriði í athafnalífi þeirra og' geta fært
sér sitthvað þaðan í nyt. Ætti það að geta átt við að
sumu leyti um stjórnmálin sem um önnur mál.
THOMAS JEFFERSON
17R NAFN þess af forsetum Bandaríkjamanna frá fyrri tíð, sem
þeim er einna hugstæðastur, næst Lincoln. í Apríl sl. héldu
þeir upp á tveggja alda afmæli hans. J. var höfundur Frelsis-
skráarinnar frægu, sem þing Bandaríkjanna gaf út, er þau lýstu
yfir sjálfstæði sínu gagnvart yfirráðum Breta. Þar standa m. a.
þessi orð: „Vér álítum þessi sannindi augljós: Að allir menn
eru fæddir jafnir; að þeir eru af Skapara sinum gæddir vissum
réttindum, en meðal þeirra er lif, frelsi og leit að velfarnaði.“
Fram að þessu hafði herópið gegn Bretum verið: „Líf, frelsi og
eignir.“ J. strikaði út eignirnar og var þó með auðugustu mönn-
um sinna sandanda. Fyrsta lagafrumvarpið, sem hann lagði fyrir
þing Virginíufylkis — en þar átti hann heima —, var lieimild til
])rælaeigenda um að gefa þrælum frelsi. .1. stofnaði Demókrata-
flokkinn, er lagði áherzlu á réttindi hinna einstöku fylkja og
hyggðarlaga og studdi landbúnað gagnvart auðjörlum iðnaðar og
verzlunar. J. trúði á að efla ríkið með þróttmiklum og sjálfstæð-
um einstaklingum og náttúrlegum jöfnuði. Hann stofnsetti há-
skóla, lögleiddi trúarbragðafrelsi og elskaði náttúruna og fagrar
hyggingar. Hann var þriðji forseti Bandaríkjanna, 1800—1808, og
keypti þá af Frökkum lönd þeirra i Norður-Ameríku og tvöfald-
aði með þvi stærð Bandaríkjanna og opnaði þeim útþenslumögu-
leika til Kyrrahafs. ,T. dó árið 1820. — „Ég hef svarið fyrir altari
Guðs,“ sagði liann, „að berjast jafnan gegn hverskonar harðstjórn.“
JÖRÐ 119