Jörð - 01.06.1943, Síða 26
MENNINGARSTARF
,,ORÐIГ eftir Kaj Munk
sýnt í Reykjavík
KAJ MUNK er meðal yngstu og atkvæðamestu skálda Dana,
mjög sérkennilegur og sjálfstæður í hugsun og svo fágætur
alvörumaður, að hann tekur í fullkominni og einfaldri alvöru
fagnaðarerindi Jesú Krists, eins og það liggur fyrir i guðspjöll-
unum) — a.m.k. gerir hann það í „Orðinu“ — a.mk. að því er krafta-
verk snertir! Hvort hann hefur rakið þau rök til róta svo langt,
sem skynsemi fær með fylgst, er annað mál. Að vísu er ekki ger-
andi ráð fyrir, að skynsemin fái krufið lcraftaverk til mergjar,
— en hún ætti að geta gert sér nokkra grein fyrir því, hvað það
mundi þýða, ef óvefengjanleg uppvakning frá dauðum — kærleika
vegna — i krafti trúarinnar — færi fram í nútíma mannfélagi.
/^tANGUR LEIIvSINS er þessi: Aðalsviðið er danskur bóndabær,
stór og söguríkur að fornu og nýju. Fyrirferðarmesta persóna
leiksins er bóndinn þar, 75 ára kempa. Feður hans höfðu búið þar
mann fram af manni. Þegar hann tók við búinu, var hann ungur
og nýkvæntur og gagntekinn jafnt af ábyrgðartilfinningu og metn-
aði gagnvart föðurleifðinni og af ungri, þjóðlegri trúarhreyfingu,
er um miðja 19. öld fór eldi um alla Danmörku, einkum sveitirnar,
og átti þjóðskörunginn Grundtvig að upphafsmanni og leiðtoga
áratugum saman. Grundtvigsstefnan var „glaður kristindómur“, ef
ekki að öllu djúpur, og náði geysilegum vinsældum meðal bænda-
fólksins og er langt frá, að þar væri um lizkufyrirbrigði að ræða.
Hér var í raun og veru af fágætum persónuleika vakin hreyfing,
er náði til hjarta fólksins og vakti marga meðal þess til eiginvit-
undar um, að fagnaðarerindið er rétt nefnt. Litlu seinna en Grundt-
vigsstefnan reis þó upp keppinautur, þar sem Heimatrúboðið er,
en það átti meiri ítök í bæjunum og meðal fátækara fólks, er ef til
vill hefur fundið svölun á því að geta litið niður á „betri bændur“
og þeirra fólk, sem voru aðaluppistaðan i Grundlvigsliðinu, —
en Heimatrúboðsfólkið taldi sig „frelsað“, og aðra yfirleitt „glat-
aða“ — á meðan þeir væru ekki gengnir þvi á liönd! Enginn efi
er á því, að Heimatrúboðið hefur, þrátt fyrir þetta og þvílíkt, að
sumu leyti lagst dýpra en Grundtvigsstefnan gerði að jafnaði: fund-
ið og bent betur á alvöru og ábyrgð lifs og dauða en aðrar trúar-
stefnur þar í landi.
120
jonn