Jörð - 01.06.1943, Qupperneq 73
■vörðust með vatni, sem raunar kom ekki að fullum not-
um, því óvinfrnir voru i olíufötum. Af Islendingum
tók enginn þátt í þessari orustu, nema Fimmtándi. Hann
bjó þá á „Admiralitetinu“ og rómuðu bæði samlierjar
og óvinir hetjulega framgöngu hans. Viðureignin stóö
frá því kl. 8 um kvöldið allt til miðnættis, en þá þóttust!
>»aðmírálarnir“ sjá sitt óvænna, liörfuðu inn i lierhergi
sín og læstu að sér. Ögruðu þá óvinirnir stóraðmíráln-
um, þangað til hann kom út, en hann fékk þær viðtök-
ur, að tveir héldu honunr og sá þriðju hellti yfir hanm
úr valnsfötu. Nokkur verksummerki sáust morguninn eft-
ir, og voru mestu kapparnir úr hardaganum kvaddir á
lund Garðprófasts. Þetta var síðan kölluð sjóorustan mikla.
Að síðustu skal segja frá einu atviki enn, er var nokk-
uð einstakt og’ þó gott dæmi um, livað Garðlífið gat borið
1 skauti sínu. Svo er mál með vexti, að „Lindin“, þ.e.a.s.
stóra linditréð í miðjum garðinum, á afmæli, að því er
talið er, á tilteknum vordegi, og er þá mikill veizlufagn-
aður og hyrjar með því, að festur er á hana kven-
hanzki, úttroðinn, sem allir taka í um leið og' þeir koma
fyrst út á þeim degi. Er síðan lialdið kaffisamsæti úti.
1 garðinum, þegar veður leyfir, og stundum dansað úti,
er kvöldar, en stundum er dansað inni. Nú var það eitt
vor, að kóngurinn sjálfur kom til Lindarafmælisins og
lágu til þess atvik, er í sjálfu sér voru söguleg, og einnig
leiddi það til skemmtilegra smáatvika, og' skal nú greina
frá þessu.
Svo har til, að haldið var liátíðlegt 350 ára afmæli sjóðs-
uis, sem Garðurinn byggist á (Kommunitetet), og var það
Iveiniur dögum fyrr en Lindarafmælið. Var þá haldiir
kvöldveizla mikil á lestrarsalnum og voru þar ýms stór-
Aienni fyrir háskólans hönd, og kóngurinn kom, en hann er
sjálfsögðu stúdent. Var þá, og að sjálfsögðu, mælt fyrir
Unnni konungs, og það meira að segja tvisvar, því íslend-
uigar kusu til þess Fimmtánda að ávarpa liann sérstaklega
sinni hálfu. Svaraði konungur ræðu Fimmtánda og
Var orðinn reifur vel og beindi fvrst orðum sinum per-
JÖRÐ 167
II*