Ný kristileg smárit - 01.04.1894, Blaðsíða 1
NÝ KRISTILEG SMÁRIT,
GEFIN ÚT
AÐ TILHLUTUN BISKUPSINS YFIE ÍSLANDI.
Iír.6 Og7 jj Fylgirit með Kirkjublaðinu. 1894.
Apturhvarf morðingjans Friðriks
Sigurðssonar.
Jeg álít það ei einasta skyldu mína, heldur er
mjer stærsta ánægja, að halda sjerhverju því á
lopt, sem orðið getur til vegsemdar okkar kristnu
trúarbrögðum, og leitt áþreifanlega í ljós, að Jesú
Iærdómur er kraptur Guðs til sáluhjálpar öllum
sem trúa honum.
I því skyni tek eg mjer fyrir að rita fátt eitt
um morðingjans Priðriks Sigurðssonar líferni, en
sjer í lagi hans efstu markverðu æfistundir, af
hverjum eg vona að sjáist, að enn nú gefst sú trú
til Guðs náðar fyrir Jesú verðskuldun, sem láti
einn stórbrotamann, fulltrúa um synda sinna kvitt-
un, ganga fagnandi dauðanum á móti.
Nefndur Friðrik var fæddur 8. maí 1810áKata-
dal í Húnavatnssýslu, af foreldrum í bændastjett,
sæmilega efnuðum, allvel gáfuðum og upplýstum.
Hann lýsti snemma mikilfengu náttúrufari, sem
allt ofmikið mun hafa verið forsómað að temja með
skynsamlegum aga, sjer í lagi tjáist, að móðirin
hafi haft ofmikið eptirlæti á honum í hans barn-