Tákn tímanna - 01.02.1920, Page 5
TÁKN TÍMANNA
37
Vér daprir spyrjum Guðs að gæzku,
liún gefur aftur dýrðleg svör:
Ei hæfir saklaust heimur þér,
því himins sæla búin er.
f’ó duftið leggist lágl í moldu,
en lífið geymist Guði hjá;
vér munum aftur ofar foldu
vort elsku barnið kæra sjá.
Sú von fær tregatárin still
og trúar örugl hjarta fylt.
Guðs orð er Ijós á lífsins vegi,
það lýsir bezt í dimmu’ og sorg,
og bendir hug að dýrðardegi,
á Drottins kæru, lielgu borg,
þá böndin tengjast aftur öll
og engin þekkjast táraföll.
Ó farðu vel, vort barnið blíða,
þig bundið ekki dauðinn fær,
því Drottinn, sanna lífið Iýða,
þá lífs upp rennur morgun skær,
þig vekur upp af banablund
við bjarta sína komustund.— B.J.
Lag: Knlliö er komiö.
Lifið er sloknað, líkaminn er stirður,
blíðustu augun þín brostin nú.
köld er því höndin, kærasti vinur,
en hátt til Guðs ég horfi í trú.
Sárt við þín söknum, sælt var með þér
una,
samvist þín gleði og yndi jók.
endað er stríðið, ei viljum kvarta,
því Guð í náð þig gaf og tók.
Lif þitt er falið lífgjafans í kendi,
líkami og sálin þó hvílist bér.
Dýrðlegt það verður, Drottinn þá kem-
ur,
að líta þig í ljóssins her.
Sofðu nú væran, sæll unz dagur ljóm-
ar.
Samvist er lokið í táradal.
Ástkæri sonur, aftur við fáum
þín njóta Guðs í gleðisal.
Y iðvörun.
»En Drottinn alvaldur gerir ekkert,
nema hann kunngeri sinn leyndardóm
fyrir sínum þjónum, spámönnunum«.
Amos. 3, 7.
Þetta vers er án efa eilt af þeim
huggunarríkustu í allri ritningunni.
Hefðum við það ávalt fast i huga,
mundi kvíði ekki fá lækifæri til að komasl
að. Við mundum, værum við öll í Gnðs
hendi, mæta öllu með rólegu geði vit-
andi, að Drotlinn leyfir ekkert að kom-
ast að eða gerir ekkert án þess að lýsa
því fyrirfram fyrir þjónum sínum, spá-
mönnunum.
Fáein dæmi munu gera þetta skýrt
fyrir okkur.
Guð sendi ísrael i herleiðinguna til
Babels-borgar vegna óhlýðnis og segir
um leið að hann ætti að þjóna Ba-
bels konungi í 70 ár. En lofar þeim
heimfararleyfi að þeim tíma liðnum.
Jer. 25, 11. 12. Fyrsta herleiðingin átti
sér stað árið 606 f. Krisls fæðingu.
í spádóminum segir hann líka, að hann
vildi refsa konunginum í Babel þegar
þessi 70 ár eru liðin. Hvernig fór?
Sýrus, Persakonungur kom móti Ba-
bylon þegar þessi tími var að enda eða
árið 539 f. Kr. Sá, sem þá hafði lesið
og gefið spádómi Jeremíasar gaum, vissi
vel, að eyðilegging borgarinnar var í