Tákn tímanna - 01.09.1922, Blaðsíða 1
Dýrð komandi aldar,
Hjálpræðið heyrir bæði til fortíð, nu-
tíð og framtíð, fortíð, að því leyti, að
Jesús gaf líf sitt syndurunum til lausn-
argjalds, er hann dó á krossinum fyrir
19 öldum, nútíð, að því leyli, að trú-
aðir menn veita daglega viðtöku þess-
ari friðþægingarfórn til réttlætingar og
helgunar, framtíð, að þvi er snertir það,
að öðlast hina eilífu arftöku í dýrðinni,
sem heitin er þeim, sem standa stöð-
ugir alt til enda.
Pví er það, að biblían talar svo oft
um kristna menn, sem séu frelsaðir mí
og aðra sem muni frelsast, t. d. »Sá,
sem heyrir orð mitt og trúir á hann,
sem sendi mig, hann hefir eilíft líf, og
kemur ekki til dóms, heldur hefir geng-
ið frá dauðanum til lífsins, Jóh. 5, 24.
Hér er um liina núverandi hjálpræðis-
reynslu að ræða. Annarsstaðar er minst
á hjálpræðið sem væntanlegt. »Hjálp-
ræðið, sem verður birt á síðustu dög-
um«, 1. Pét. 1, 5. »Hjálpræðið er nær
oss nú, en þegar vér tókum trú«. Róm.
13, 11.
Trúaður maður er frelsaður nú frá
sekt og hegningu syndarinnar, fyrir
trúna á Jesú friðþægjandi blóð. Petta
er kallað réttlæting, Og liann vex fyrir
Guðs náð fyrir kraft heilags anda til
heilags vaxtar og lifir sigrandi lífi. —
Petta er helgun. Og enn fremur mun
hann frelsast að fullu og öllu, frá þræl-
dómi forgengileikans fyrir upprisuna
við endurkomu Krisls. Petta er dýrð,
að vera gerður vegsamlegur.
Hjálpræðið er því ekki fullkannað —
í æðsla skilningi — fyr en Guðs börn
eru vegsamleg gerð. Verki Krists er ekki
lokið, fyrr en Guðs mynd er að fullu
og öllu endurreist í manninum í ódauð-
leika-ástandinu og honum er aítur feng-
ið frumheimkynni sitt á syndlausri jörðu.