Syrpa - 01.10.1915, Side 38

Syrpa - 01.10.1915, Side 38
100 SYRPA II. HEFTI 1915 tónsnillingi. Hann mætti leiftrandi augum frúarinnar og horfði í þau alvarlega. Allra augu hvíldu á hon- um; en djúpt inn í augnaráð hans komst enginn, fremur en í slfpaða stálkúlu. En hversu óskiljanlegt sem augnaráðið var, stóð þar þó greinilega málað: “Eg þekki þig ekki frú!” Og fagurmyndað ennið, nefið og þéttlokaður munnurinn, kinnarnar og jafnvel gimsteina hnapparnir í brjóstinu sögðu; “Hreyfðu ekki við mér!”—3>að var líkast því sem hvert tjaldið á fætur öðru félli fyrir augun! Á einu augnabliki var allt úti. Frúin sneri sér lað Magnhildi, eins og til þess að taka hana sem vitni. Og þó ekki! Því enginn sála í heim- inurn, nema hann einn, vissi hve miklu hann fórnaði, og hve fang- breiðum kærleika hann þeytti út í bláinn! Aftur leit hún á hann, svo snögg lega, að það líktist leiftri. Hvflík sorg, hvílík sæla, hvílík fyrirlitning, skiftist á í orðuin og athöfum frú- arinnar! Jafnvel Magnhildur, sem naumast vissi hvað hún átti af sér að gera, fékk sinn skerf. Andlitið breyttist skjótlega; nú bar það vott um hin sárasta einstæðingsskap; svo féll lrún á bæn eins og barn! Tárin streymdu af augunum. Magn- hildur rétti viknandi fram hendina. Frúin greip í hana og þrýsti henni svo fast, að Magnhildi iá við hljóðum. Hin harmþrungna kona, hét á líkamskrafta sína—við það náði hún sér. Nú brosti hún aftur. Líttu á! Þarna meðfram grind- unum komu allt í einu gangandi, tveir herforingjar; það sáu allir. Hver mundi geta neitað yfirhers- höfðingja húfu um aðgang? Hann gekk löngum skrefum, veifaði hand- leggjunum mikillega; eins og hann væri sjálfur hvorttveggja í senn, bæði yfirhershöfðingi og herinn; undirforingin gekk við vinstri hlið. Löngu áður en hann var kominn, sendi hann virðulegt kveðjutákn hinni fögru konu hervirkjafræðing- sins. Hún þaut af stað, hálf hlaup- andi, á móti þessum blessuðum verndai'englum. Yfirhershöfðinginn leiddi hana við hönd sér þangað, er hún hafði áður verið og tók sæti við hlið hennar. Það varð hlut- skifti Magnhildar að sitja hjá undir- foringjanum, eftir að frúin hafði gert þau kunnug. Yfirhershöfð- inginn leit til Magnhildar, og undir- foringinn var kurtcysin einber! Meira var það ekki, sem hún gat gert sér grein fyrir. Hún skalf eins og hrísla. Frúin var uppljómuð af andagift, fegurð og kæti. Einstaka sinnum varð henni gripið um hönd Magn- hildar, og þrýsti hún henni þá með sama kyngikraftinum og áður. Hún svalaði sér í augnabliks-sæl- unni. Magnhildur kvaldist á hinn bóginn álíka á sál og líkama. Hún heyrði í leiðslu fagnaðaróp undir- foringjians, er við lilið hennar sat, og Mögdu. Hún sá nokkrar kúlur á hendingskasti, og að einn áhorf- cndanna þreif stærri kúlu og henti henni afiafli miklu til trúðleikarans, skall hún á brjóstinu—hún heyrði líka í sömu andránni, að frúin sagði við yfirhershöfðingjann, að hún ætlaði að verða með honum daginn eftir, hún liefði blátt áfram þráð komu lians, einkanlega þó eftir að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.