Alþýðublaðið - 24.05.1923, Síða 1
*923
1x4. tölublað.
Ríkissknldabréfin sænsku,
sem er tiappdrætti um leið, kaupa allir.
Allar nánari upplýsingar gefur
Kristinn Pálmason nmboðsmaður
daglega kl. 12—1 og 6 — 7.
Verzlunín Jökull Laugaveg 49. — Sími 759.
AlbýðnbranðBerðin
framleiðir að allra dómi
bezfu brauðin í bænum.
Notar að eins bezta mjöl og hveiti frá þektum erlendum
mylnum og aðrar vörur frá helztu firmum í Ameríku,
Englandi, Danmörku og Hollandi. Alt efni til brauð- og köku-
gerðar, smátt og stórt, eru beztu vörutegundirnar, sem á
heimsmarkaðinum fást.
Dagsbrún.
Fundur haldinn í G.-T.-húsinu í kvöld, 24. þ. m.,
kl. 7^/2 e. h. — Fundarefni: Jón Baldvinsson segir
þingsöguna. Umræður á eftir. Sýnið félagsskírteini.
Stjórnin.
Kðliun aiúýlnnnar.
IV.
Fyrsta kölíun alþýðunnar fyr&t
um sinn er það að ryðja úr
végi torfærunum á leiðinni til
fyrirheitna landsins, framtíðar-
ríkis jafnaðarmanna, hins endur-
bætta þjóðfélags.
Þær torfærur eru lestir og
brestir samtíðarmannanna.
Lestir manna eru torfærur á
þessari leið sökum þess, að þeir
eru æfinlega vitleysa, sem siglir
undir fölsku flaggi og villir
mönnum sýn um sanngiidi hluta
og hugmynda.
Brestir manna eru torfærur á
þessari leið vegna þess, að þeir
taka alt af einstaklinginn fram
yfir samfélagið, hlutann fram
yflr heildina, girndina fram yfir
þörfina.
Til þess að ryðja þessutn tor-
færum úr vegi er aiþýðan kölluð
af máttarvöldum tilverunnar.
Tii þfcss að gegna þessari
köílun sinni verður alþýðan að
takast á hendur starf vandlœtar-
ans í þjóðfélaginu, — átelja
lestina, benda á brestina.
Nóg er verkefnið. Drykkju-
löstur þjóðarinnar lætur hana
kaupa áfengi í svo stórum stíl,
að ágóðinn af þeirri verzlun
skiftir hundruðum þúsunda, en
samtímis er ríkið í vandræðum
með sjúklinga sína. Bankastjór-
ar, ,sem brestur getu að leysa
sómasamlega af hendi stört sín
og baka með því öllu ríkinu
vandræði, eru verðíaunaðir með
meira fé eif þeir geta torgað
með eyðslu og gefið >frí«. Sam-
vizkusömum verkamönnum aftur
á móti er synjað um verk að
vinna og sveltir að saklausu,
þótt þarfir þjóðarinnar hafi nóg
handa þeim að gera.
Svo er um sitthváð fieira; —
svona er um margt, margt fleira.
Hér þárf vandlætingar við. Ef
alþýðan ekki vinnur hana, vinn-
ur hana enginn.
Hvarvetna þar, sem einhver
áiþýðumaður sér eitthvað fara
aflaga, — þá á hann að hefjá
upp raust sfna og segja til,
hlífðarlaust og hreiniega, tii þess
að úr verði bætt almenningi til
heilla, en ekki til ávinnings
einstaklingum.
Ef þetta er gert, ef þessari
köllun er hlýtt, mun brátt verða
greiðfærara að markinu.
Þó er ekki hér með búið.
Kaupið Kvenhatarann; er ó-
dýr og skemtii'egur. — Fæst f
Tjarnargötu 5.
Hjálp og hjúkrun i slysum og
sjúkdómum er bók, sem ætti að
vera til á hverju heimili og á
hverju skipi. Með 53 myndum.
Yerð kr. 3,50. Fæst hjá bóksölum.
Hefi aftur fengið tiéskósstígvéla-
botna. Smíða ný stígvél eftir
pöntuu, set botna í gömul. Ragnar
J. forsteinsson, Bergstaðastíg 22,
Góður staður í sveit 1 óskast
handa 10 ára dreng. A. v. á.