Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Qupperneq 3

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Qupperneq 3
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 99 lét það uppi, að liann vildi helzt gefa sig við sjómensku. Maxwell skipstjóri kom honum inn í her- Þjónustuna, og þegar hann varð sjálfur um fíma að hætta sakir heilsuleysis og ofurþreytu, Lom hann Eðvarði fyrir á öðrum skipum. Svo verðum vér að hlaupa yfir nokkur ár; Eðvarð Templemóre þokaðist á meðan nær og nær lífstakmarki sínu; hr. Witherington tekur að gerast gamall og elnaði honum æ sérvizk- an með aldrinum; Moggý systir hans skemtir sér við samræður Bettýar og spilar vist. En allan þennan tíina hafa engar fregnir borist af bátnum eða frú Templemóre og barni hennar; menn hugðu því, sem eðlilegt var, að þeir hefðu farist og mintust þeirra aðeinseins °g þeirra er minst, sem löngu eru dánir. VI. KAPÍTULI. Sjóforingjaefnið. Tvö stórmenni voru stödd aftur á skut- Þ'ljunum, kulborðamegin, á »Einhyrningnum«, Eegátu hans hátignar. Annar þeirra var Plumb- ton bapteinn, yfirforingi skipsins; hann var á- reiðanlega það á þverveginn sem hann vantaði a hæðina, og tók því upp meira rúm á skip- mu en nokkurt vit var í. En hann átti skip- 'ð sjálfur, og hafði því heimild til að vera svo fyrirferðarmikill sem hann vildi. Hann var rétt fjögur fet og tíu þumlungar á hæð, og alveg jafnmikill yfir um mittið. Hann hefði svo sem Verið nógu stór hefði verið teygt úr honum. bfann trítlaði fram og aftur með óhneptan Eakkann, og þumalfingurnar í handvegunum á Vestinu, svo axlirnar svignuðu aftur á bak og juku enn meir á breiddina. Hann stóð hnakka- bertur, svo að brjóstið og vömbin stóðu enn meira fram fyrir það. Hann var sönn fyrir- mynd í því, að standa fattur og vérá góðlát- legur í skapi, og spígsporaði þarna eins og þagnarleikari á leiksviði. Hinn var varaforinginn; náttúrunni hafði litis’t að steypa hann í öðru móti. Hann var að því skapi langur sem kapteinninn var stuttur — að því skapi mjór, sem kapteinninn var digur. Löngu og mjóu lærin á honum náðu upp á móts við herðarnar á kapteininum; hann beygði sig fram yfir höfuðið á yfirmanni sín- um eins og dragreipiskrókur, og kapteinninn væri vörubaggi, sem ætti að draga upp. Hann hafði hendurtiar fyrir aftan bakið og krækti þar tveim fingrunum saman, og var að sjá að hann ætti örðugast með að verða kapteininum samferða — hann var svo langstígur. Hann var skarpleitur og magur í andliti, eins og hann var innanklæða, og bar í öllu merki þess að lundin var ekki góð. Hann hafði borið fram ýms kærumál um ýmsa menn, og kapteinnirm hafði enn ekkert látið það á sig fá. Plumbton skipstjóri var í góðu skapi, og var ætíð ánægður ef hann fékk góðann miðdegismat; Markitall lautenant var ólundarseggur, sem vel hefði getað dottið í hug að jagast við matinn sinn. »Pað er alveg ógerningur, herra« sagði vara- foringinn, »að halda góðri reglu þegar maður er ekki studdur.« Pessi athugasemd kom eins og goðasvar ofan úr Ioftinu, þegar athugaður er stærðar- munurinn á þeim, og kapteinninn svaraði: »Jú, það er satt.« «Pá geri eg ráð fyrir því, herra, að þér séuð því ekki mótfallinn, að eg setji þennan mann á skýrslúna um þá sem á að hegna?« «Eg skal liugsa beturum það, hr. Markitall.« Eftir vanalegu orðalagi Plumbtons kapteins þýddi það sama og ,nei‘. »Mér þykir ilt að verða að segja það, herra, en þessir ungu menn eru bæði þrjóskir og þverúðarfullir.» Pað eru drengir ætíð vanir að vera», svar- aði kapteinninn. »Já, herra, en aganum verður að halda og eg get ekkert viðráðið án þeirra.« «Pað er satt - foringjaefni eru að miklu liði,« 13*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.