Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Síða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Síða 6
102 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. mig vita þegar skautið á frammasturseglinu er komið í Iag — mér þætti gott að það gæti orðið skift um þau í kvöld.» Hr. Markitall gekk aftur á lágþiljur til þess að spyrjast fyrir um seglið. «Og heyrið mér, Eðvarð,» sagði Plumbton kapteinn, þegar varaforinginn var kominn úr áheyrn, «eg hefi heilmargt að tala um við yð- ur út af þessu, en eg hefi ekki tíma til þess núna. Komið því ofan og borðið miðdegis- verð með mér í dag — við mitt borð vitið þér að það er leyfilegt að hlæja — í hófi.» Unglingurinn bar höndina að hattinum og fór; gleðin og þakklátsemin skein út úr honum. Vér höfuin sagt frá þessu atriði til þess að sýna í stuttu máli hvernig Eðvarð Templemóre var gerður. Hann var fjörið, kætin og meinleys- ið sjálft, og var vel við alla, og meira að segja varaforingjann sjálfan, þó að hann hefð horn í síðu lians fyrir hláturmildina. Vér viljum engan veginn segja, ða pilturinn hafi haft heim- ild til að hlæja hvar og hvenær sem var, eða varaforinginn hafi gert rangt í því að reyna að reisa skorður við því. «Sérhvað hefir sína tíð» eins og kapteinninn komst að orði, og hlátur Eðvarðs var ekki alténd tímabær, en hann var nú svona gerður, og hann gat ekki gert að því. Hann var glaður sem vormorgun, og svo var hann í mörg ár, hló að öllu — Rótti vænt um alla — öllum þótti vænt um hann, og djarfa glaða og röska æskulundin hans lét ekki bugast af baráttu og móttlætingum lífsins. Hann hélt út sinn námstíma— og var nærri vísað frá við lautenantspróf, af því hann hló, og svo fór hann aftur hlæjandi til sjávar — fékk yfirforustu yfir báti ífyrirsátursferð á móti franskri «korvettu», og þegar hann var kom- inn upp á þiljur hennar, hafði hann ákaflega gaman af frakkneska kapteininum; hann hopp- aði eins og ketlingur um þiljurnar með sverð sitt, og vó margan mann þó lítill væri; seinast særði kapteinninn hann, svo að hann féll, — Fyrir þessa frammistöðu og sárið sem hann fékk, var hann hafinn til lautenantstignar, — var settur á línuskip í Vestur-Indíum — hló að gulusóttinni — fékk yfirforustu yfir fylgi- snekkju þessa línuskips, allra laglegustu skonn- ortu, og var svo sendur út í skipaleitir eftir hernámspeningum handa aðmírálnum og tign- arauka handa sér, ef hann kynni að geta orð- ið svo heppinn að slampast á að ná í það. VII. KAPÍTULI. Sofendavíkin. Á vesturströnd Afríku er vík ein lítil, sem nefnd hefir verið ýmsum nöfnum af sjófarend- um þeim, er þangað hafa borist af tilviljun. Það nafnið, sem hinir bíræfnu, portúgisku sæ- farar, er fyrstu réðust í að kljúfa kili kólgur Suður-Atlantshafs, gáfu henni, týndist, þegar dofna fór yfir sjómennsku þeirra. Nafn það, er negrarnir þar á ströndinni gáfu henni, hefir líklega aldrei þekst, en á sumum gömlum enskum kortum er hún nefnd Sofendavík. Meginland það, sem vík þessi skerst inn í er hafnafátt mjög, og þarf heldur ekki hafna við, sízt eins og stendur, því að þar er eyði- Iegt mjög og Ijótt umhorfs; svo langt sem augað eygir er ekki annað að sjá en hallfleytta strönd, þakta snjóhvítum sandi og að baki henni dálitla sandhóla, sem Atlantshafs-storm- arnir hafa þeytt upp í skafla, þegar hvassast hefir verið, — þurra, bera og gersamlega gróð- urlausa. Inn í landið verður ekkert séð fyrir sífeldum hillingum, og grillir einstöku sinnum í gegnum þær í nokkur pálmatré í fjarska, en svo eru þau brotin og aflöguð af hillingunum, að ímyndunaraflinu verður að gera alt annað úr þeiin en laufaskrúð og skuggsæla lunda. Vatnið í víkinni er slétt eins og vel fægður spegill; þar heyrist ekki allra minsta gjálfur við fjöruna, til að rjúfa kyrð náttúrunnar, enginn vindblær, enginn andvari gárar spegilflöt vatns- ins, sem orðinn er heitur af eldheitum geisl- um glóandi hádegissólar, er steypir niður heilu flóði af steikjandi, svíðandi Ijósi og hita. Eng-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.