Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Síða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Síða 13
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 109 um þakka fyrir, ef niðurstaðan af erfiði og bar- daga langrar æfi verður sæmileg — en alveg jarðnesk og yfirlætislaus BabiIon,« segir Browning. I sama verki («Seinasta skeiðið») skýrir skáld- ið þessa hugsun enn betur: Maður biður meyj- ar. Hún neitar honum. Nú — — við því verður ekki gert. Hann elskaði hana af öllum mætti mannlegrar sálar; vakandi og sofandi dreymdi hann hana. Og úr jarðvegi draum- anna spratt vonin í ástarylnum — vonin um það, að hann fengi að njóta hennar — að hún yrði konan hans, Konan hans! Nei, það getur hún ekki, segir hún, en hún hatar hann ekki heldur. Og örvinglan druknandi manns gagntekur hann. Hann finnur, að eitthvað, sem á að lifa, er að devja — dýrmætustu von- irnar eru að drukna í sorgarsöltu íshafi ógæfu- þrungins veruleika. í rödd hans blandast óm- blær slitnandi strengja og hreimur hræðsluóps- ins, þegar hann biður hana um náð og misk- un.. Má hann ekki sjá hana, tala við hana, vera hjá henni örfá augnablik enn þá? Hann gat ómögulega farið strax. Hann gat ómögulega •okað inni allan þann yl og ánægju, alla þá gsefu og gleði, sem hann hafði vænst af líf- lnu — — en sjálfan sig úti — aleinan, úti 1 köldum og hamingjusnauðum heiminum. Mátti ekki hurðin að minsta kosti standa í liálfa gátt ofurlitla stund, svo hann hefði tíma bl að átta sig á örlögum sínum? Síðustu ósk- lr dauðadæmdra eru vanalega veittar, ef þess er nokkur kostur. Leyfum honum — dauða- ðæmda manninum — að njóta lífsins enn þá örlitla stund. Látum þau ríða út saman — að eins einusinni enn — — í síðasta skiftið. Leyfum honum að ríða við hlið hennar einu sinni enn, hjálpa henni á bak, taka hana af baki aftur, og svo mun hann hverfa frá henni •yiir fult og alt — ganga burtu rólegur, þeg- ar hann hefir skilið alt og áttað sig. Hún hugsar sig um ofurlitla stund. Og svo lætur hún að orðum hans. Hestarnir koma. Rau ríða á stað. Skrafhreyf- in eru þau eiginlega ekki. Hestarnir skeiða samhliða. Landið svífur fyrir sjónum þeirra og fleygir ótal Ijósbrotum og litbrigðum að þeim. Pað festist í sál hans. Hugmyndir og hugs- anir koma og fara — viðstöðulaust — — sundurlaust . . . og hófadynurinn.........síð- asta skeiðið...........síðasta skeiðið! Hægt og hægt færist hugur hans í jafnvægi. Herra trúr! Hver svo sem fær alt, sem hann óskar sér og dreymir um í heimi þessum? Enginn einasti. Allir verða fyrir vonbrigðum. Og því þá ekki hann eins og aðrir. Honum hefir þó auðnast ofurlítið. Hann dreymdi um að lifa með henni. Nú, hérna ríða þau þó samsíða. Rað var þó alténd það. — — Já; eitt augnablik hvíldi hún við brjóst honum. Rað var, þegar hann hjálpaði henni á bak. Það er vel hægt að lifa hálft Iíf — máske heila eilífð á slíku augnabliki. Hefði eg gert þetta — — eða hitt, þá hefði hún ef til vill elskað mig............. Já, en ef til vill hefði hún hatað mig...........En nú ríðum við hérna — hún og eg. Allir þrá og vona. En hverjum lánast alt, sem hann vill? Öllum er eitt sameiginlegt — vonbrigðin......... Athugaðu einu sinni vel árangurinn af erfiði mannanna og viðleitni. Berðu saman það mikla, sem á 11 i að gerast, og það litla, sem gerðist — — þetta, sem æsku- vonirnar afköstuðu. Dýrsta og kærasta vonin mín, það var ástin hennar — — — — og hérna erum við þó saman. Dragðu fána þinn á hæsta hún á nýorpn- um leiðum miljónanna, sem þú hefir undirok- að og deytt. Og að launum mun nafn þitt verða greypt í grjót og ef til vill gulli rent. — — Með leyfi! Meira hefi eg fengið að laun- um lífs rníns. Eða, hvað heldur þú, skáld? Rú hefir höggvið rím úr heila þínum og slitið lífi þínu á orðum. Ertu svo einu skrefi nær marki þínu en við hiriir, sem eldrei höfum rímað eina ein- ustu hendingu? — — — Syngdu! Syngdu bara: »Hve indælt það er að ferðast-----að fara . . .«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.