Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Side 4

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Side 4
2 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. og fór að fá á sig mynd og lögun: hann gat séð, að þar var úlfaldi með tjald á baki. Rá spenti hann greipar, táraðist og mælti: «Guð einn er mikill.» Ulfaldinn færðist nær og nær — seinast kom hann fast að og nam staðar. Sá, sem á honum sat, las bæn í hljóði, fór síðan af baki, og kom til Egyftans; þeir Iitu snöggvast hver framan í annan, og föðmuðust síðan; oghinn nýkomni sagði: »Friður sé með þér, þú þjónn hins sanna guðs.» «Og friður sé með þér,« svaraði, Egyftinn, «velkominn bróðir í hinni réttu trú,« Nýkomni maðurinn var hár og magur; aug- un lágu innarlega, skegg og hár var hvítt sem mjöll, en hörundsliturinn var dökkrauðleit- ur. Hann var klæddur alhvítum fötum, sem títt er meðal Hindúa, nema ilskórnir, sem hann hafði á fótum sér. Hann var líka vopnlaus. «Við skulum bíða enn nokkura hríð,» sagði Egyftinn, «bróðir okkar hlýtur að koma bráð- um.« Og það reyndist svo; það sást koma þriðji úlfaldinu úr norðurátt, hvítur á lit, og líkt búinn og hinir. Egyftinn og Indverjinn biðu, þangað til hann kom nær; þá gengu þeir í móti honum. »Friður sé með yður,» mælti hann og; og Hindúin svaraði: »Verði guðs vilji.» Ressi síðasti var smágervari í skapnaði en hinir voru; hann var hvítur á hörund, og skifti litum; höfuð hans var lítið og frítt, og hárið bjart; augun voru blá og djúp, og sást á þeim að maðurinn var blíðlyndur, hreinskilinn og ástúðlegur í skapi. Eftir útlitiuu að dæma var hann utn fimtugt; ltann faðmaði einnig Egyft- ann að sér, og mælti síðan með skjálfandi röddu: «Andinn hefir fyrst leitt mig hingað, af því réð eg, að eg væri kjörinn til að þjóna bræðr- um mínum. Tjaldið er til búið, brauðið til, til þess að brjóta það — leyfið mér að gera skyldu mína.« Og hann tók þá við hönd sér, leiddi þá inn í tjaldið, leysti ilskóna af fótum þeirra, þvoði þá, helti vatni yfir hendur þeirra og þerraði þær með dúk. Síðan þvoði hann sér um hendurnar og mælti síðan: »Nú skulum vér, bræður, safna kröftum til starfa vors. Peg- ar er vér höfum matast, skulum vér kynnast hverir öðrum, og talast við um það, hver er tilgangurinn og takmark ferðar vorrar.» Hann raðaði þeim svo, að þeir gátu allir séð hver í andlit öðrum í sætunum. Þegar þeir voru seztir, hrieigðu þeir allir höfuð sín, og lásu þessa einföldu borðbæn: «Ó þú guð og faðir allra, alt það sem vér höfum er frá þér; þigg þakklæti vort og veit oss blessun þína, til þess vér breytum ætíð eftir þínum vilja.» Pessi samkoma gerðist á 747. ári Róma- borgar, í deseinbermánuði, þegar helzt er vetrarkuldi í Miðjarðarhafslöndunum. Rað vekur matarlystina að ríða um eyðimörkina; þeir voru allir svangir og borðuðu með beztu lyst. Peg- ar þeir höfðu sefað hungur sitt, sagði Egyft- inn: «Pegar menn eru á ferð, í útlöndum er engum annað kærara en að heyra ókunnan mann nefna nafn sitt. Par eð við verðum sam- ferða nokkra daga, er tími til kominn, að við kynnumst betur en orðið er. Pá er bezt að sá byrji að segja frá sjálfum sér, sem kom hingað síðastur.» Bjarthærði maðurinn tók að tala, og talaði gætilega, eins og sá, sem orðið er að vana að hafa vald á sjálfum sér. «Bræður mínir,« sagði hann, «Pað, sem eg hefi frá að segja, er svo torskilið, að eg veit ekki hversu eg má koma orðum að því. Eg skil ekki sjálfan mig; egget að eins sagt, að eg er sem ieiddur af æðra valdi, og eg geng þá leið, sem eg geng, í þeirri trú : svo er guðs vilji.» Hann þagnaði litla hríð, til þess að geðs- hræring hans fengi ekki vald yfir honum, og hélt svo áfram: «Eg er Kaspar Kleanþesson, frá Aþenu- borg; eg stunda bóknám; tveir mestu heim- spekingar vorir hafa kent svo: annar, að mað- urinn hefði ódauðlega sálu, hinn, að til sé að- eins einn, óendanlegur, réttlátur guð; þessir tveir lærdómar fundust mér þess verðir, að

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.