Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Blaðsíða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Blaðsíða 20
18 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Borgin þögla. Hertogina af Saxebury var kominn með enska herinn yfir landamæfin, inn á láglendi Skotlands, og tjaldaði herbúðir sínar við fljót eitt, þar sem hann lét fyrirberast um nóttina. Pað var asi á Saxbury, því hann ætlaði að ná í vesturher Skota og berjast við hann, áður hann næði að sameinast austurhernum. Pó að komið væri fram undir miðnætti var enn þá dauf dagsbrún á vesturloftinu, og við birtuna af henni sázt móta fyrir rammgjörðri kastalaborg. Það er miður heppilegt, fyrir hvaða her sem er, að hafa óvinaborg að baki, en hertoganum lá svo mikið á að komast áfram, að hann þorði ekki að eyða svo miklu, sem einni klukkustund, til að taka borgina. Her- mennirnir urðu að fara af stað aftur, strax og þeir voru búnír að hvíla sig dálítið. Herforinginn hugsaði sig um í nokkrar mínútur, svo gerði hann orð eftir yngsta for- ingjanum í her sínum, Edvarð Bingham, lá- varði, og að einni mínútu liðinni stóð hann fyrir framan hertogann. »Bingham« sagði hertoginn, »við verðum að ná borginni þarna á okkar vald. Um Ieið og gefið er merki til að halda af stað í fyrra- málið, skuluð þér taka með yður hundrað menn og eina fallbyssu. Vinnið borgina, og komið svo á eftir, svo fljótt, sem þér getið.» »A eg að eyðileggja borgina, herra hershöfð- ingi ?» «Ekki nema hún veiti mótspyrnu. Dragið upp enska fánann á henni, takið það loforð af setuliðinu, að það skifti sér ekki af stríðinu, og komið síðan. Eg þori ekki að missa hundr- að menn, og þess vegna verðið þér að hraða yður, sem mest þér megið. Eg trúi yður fyrir þessu, af því eg vil að það gangi fljótt, og af því eg veit, að yður Iangar til að vinna yður eitthvað til frama.» Edvarð lávarður hneigði sig og yfirgaf hershöfðingjann. Síðan fór hann til manna sinna, og sagði þeiin, hvað þeir ættu að starfa næstu daga. og lagðist svo til svefns. Að fjórum ktukkustundum liðnum sat Bing- ham á hestbaki og reið í broddi fylkingar sinn- ar -vestur á Ieið til borgarinnar, meðan megin- herinn þeysti á stað í norðurátt. Hinn ungi maður hafði gaman af, að virða borgina fyrir sér. Hún var ólík samskonar borg- um sem hann hafði séð. Hún lá mitt á lítilli sléttu, og þó voru hvorki varnargarðar eða díki í kringum hana. Pað var ferhyrnd stein- bygging, með stórum sívölum turni í hverju horni og bæði í múrunum og turnunum voru skotaugu. Regar nær kom, sá hann að hliðið var lokað með sterkri járngrind, og fyrir inn- an hana var járnbent hurð. Pað sázt enginn maður hvorki á múrunum né við hliðið. — Lávarðurinn lét menn sína nema staðar lítinn spöl frá borginni. Fallbyssunni var snúið þann- ig, að opið sneri að hliðinu, jafnvel þótt hinn ungi yfirmaður væri í efa um, hvort borgar- búar þektu svo þessa nýju stríðsvél, að þeir hefðu hinn tilætlaða ótta af henni. Aftur á móti var hann ekki í efa um, að hún væri að minsta kosti eins hættuleg fyrir hans menn og óvinina. Sökum þess, að alt var svo kyrt og hljótt í borginni, vonaðist hann eftir að hún mundi gefast upp, því ef svo væri ekki, hvers- vegna komu þá ekki borgarmenn fram og sýndu hvað þeir gátu? Með blaktandi fánum og sinn lúðurþeyíarann við hvora h.lið, reið hann djarflega að borgarhliðinu. Eftir að búið var að þeyta lúðrana hátt og snjalt stóð Edward lávarður upp í ístöðunum, og krafðist þess að borgin gæfist upp, ásamt því að hann hét borgarmönnum náð konungs- ins, ef þeir vildu vinna honum hollustueið. Síðan beið hann dálitla stund, en ekkert svar kom. Lúðrarnir voru þeyttir aftur og áskorun- in endurtekin, en alt kom í sama stað niður, og í þriðja sinn fór á sömu leið.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.