Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Síða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Síða 21
BORGIN RÖGLA. 19 öngi lávarðurinn horfði óþolinmóðlega í norðaustur, þar sem enn var hægt að eygja merki meginhersins. Von hans um að ná í hann bráðlega aftur þverraði að sama skapi, sem tíminn leið, og þessí óviðkunnanlega þögn varaði lengur. Hann benti köllurunum að fara aftur til liðsins, keyrði hestinn sporum, og og þeysti kringum borgina innan við skotmál, svo að þeir, sem ef til vill lægju í leyni þar uppi, skyldu freistast til að senda honum ör, en engin örin kom. «Borgin er auðsjáanlega mannlaus« sagði hann við varaforingjann. «Vér getum auðvitað skotið hliðið í sundur með fallbyssunni, en það væri að eins til að eyða tímanum að vera að því.« Pað var eins og létt væri þungum steini af st«6kytunum, og þeir gutu augunum glað- 'ega hvor til annars. «Er nokkur meðal yðar« hélt lávarðurinn sfram, «sem getur kastað kaðli yfir einn múr- bndinn svo hann tolli ?» Einn maður gekk fram úr hópnum og hneigði sig. »Eg hef verið sjómaður. lávarður m>nn,» sagði hann, «og hefi dálitla æfingu í að kasta kaðli. Nú skal eg reyna.» Honum var fenginn langur kaðall, sem hann hringaði í hönd sér og kastaði svo upp. Kað- nhinn slóst utan um einn múrtindinn, en rann af honum og féll niður. Maðurinn bjó til lykkju a annan endann, miðaði nákvæmlega hæðina, °g eftir fjórar tilraunir hepnaðist honum að festa kaðalinn á einum tindinum. “Laglega af sér vikið, sjómaður» hrópaði Hvarðurinn, og hinir tóku undir. «Bind þú nu fána utan um þig, klifraðu upp á vegginn, °g dragðu hann upp á sívala turninn.* Sjómaðurinn spýtti í lófana, batt fánanum utan um mittið, og spyrndi fótunum í múr- >nn og tók að klifra upp. Pegar hann var Lominn hálfa leið, slitnaði kaðallinn alt í einu °S hann hrapaði niður en kom þó á fæturna e>ns 0g köttur. “Kaðallinn er ekki nógu sterkur* hrópaði lávarðurinn, «komið með annanU »Fyrirgefið, lávarður minn» sagði sjómað- urinn. «KaðalIinn er nógu sterkur fyrir þrjá menn, en hann hefir verið skorinn sundur,* og svo sýndi hann honum endana, sem voru alveg sléttir. Lávarðurinn rak upp undrunaróp. »F*að er þá loksins einhver þarna uppi! Hann brýndi raustina og hrópaði: »Eg skipa yður að gefast, strax upp, að veita mótstöðu er að eins til þess, að þér missið lífið. Miskunar 'getið þér ekki vænzt með öðrum skilyrðum en eg hefi þeg- ar nefnt.» Allir héldu niðri í sér andanum og hlust- uðu. en ekkert svar kom. Óttablandinn hryllingur fór í gegnum her- mennina, hún var eitthvað svo ósegjanlega ó- viðfeldin þessi þögn. Jafnvel Iávarðurinn varð var við þessa tilfinningu, en svo sagði hann í höstum róm við sjómanninn: «Taktu annan kaðal, því hinn hefir sjálfsagt slitnað, en ekki verið skorinn.» Sjómaðurinn var auðsjáanlega ekki á því, tók þó digrari kaðal, og eftir nokkrar tilraun- ir gat hann fest hann og fór að klifra upp, en hinir horfðu á með öndina í hálsinum. Hann var kominn fast upp að brún, en þá hrapaði hann aftur niður; þó kom hann en niður á fæturna. Hann lét kaðalinn Iiggja þar sem hann var, og reikaði til félaga sinna um leið og hann þurkaði svitann af enninu. »Lávarður minn,« sagði hann, «eg gekk á mála í herinn til þess, að berjast við Skota, en ekki djöfla. Eg vil helzt fást við þann mót- stöðumann, sem eg get séð.« »Fáðu mér kaðalinn!« sagði lávarðurinn byrstur. Sjómaðurinn gekk að múrnum með hálf- gerðum dræmingi, tók kaðalinn upp og fékk hann foringja sínum. Lávarðurinn sá þegar, að hann hafði verið skorinn sundur með hníf. »Jæja» sagði hann, »svo er bezt að þeir fái að kenna á því — hlaðið fallbyssuna!« Stórskytarnir drógu hálfhikandi fram morð- 3*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.