Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Qupperneq 23

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Qupperneq 23
BORGIN RÖGLA. 21 sí ekki fyrir víst, hvort Ijósið kom frá opnum glugga eða veggsvölum, en seinast komst hann að þeirri niðurstöðu, að fyrir neðan hann lægju veggsvalir, hringinn í kring um garðinn að innan, og að einhver maður — líklega varð- maður — var á gangi fram og aftur á svölun- um og gekk við og við fyrir ljósið. Þegar augu hans voru farin að venjast Ijós- birtunni, sá hann sér til mikillar undrunar að þetta var kvenmaður. Öðru hvoru stanzaði hún °g bar höndina upp að eyranu, eins og hún væri að hlusta. Hún hlaut að vera mjögþreytt því hún settist einu sinni niður, og studdi höfð- *nu á brúnina á veggsvölunum, en það var ems og hún væri hrædd um að sofna, því bún spratt óðara á fætur aftur og fór að ganga um gólf. Lávarðurinn skreið áfram á fjórum fótum, °g þreifaði fyrir sér, til að vita hvert hann hann fyndi enga niðurgöngu. Loks fann hann shga, gekk hljóðlega niður, og læddist síðan eftir veggsvölunum í áttina til hússins. Hann dró sverðið úr slíðrum án þess að minsta glamur heyrðist, og rétt áður en stúlkan sneri ser við, gekk hann til hennar, og áður en hún v'Ssi af, snerti sverðsoddurinn háls hennar. ’Ó!» sagði hún titrandi og augun stóðu hyr af ótta. *Ef þér hljóðið hátt eða kallið á hjálp, neyðist eg til að bana yður«, sagði hann höst- ugur. En stúlkan var alt of skelkuð til að kalla a hjálp; mjög yfirkomin af þreytu og kvíða hné hún niður á bekkinn, þar sem hún hafði setið áður, faldi höfuðið í höndum sér og fór að gráta. Við þessa sjón mýktist hermannshjarta lá- varðarins og riddaraskapurinn fékk yfirhöndina. ^Fagra mær,« sagði hann í þýðum róm, ''fyrirgefið að eg á þenna hátt hefi komið yður 0vörum og hrætt yður. Eg sá aðeins einn ó- vm fyrir framan mig, en gleymdi að þessi ó- vinur var indæl stúlka. Fyrirgefið mér, og eg fullvissa yður um, að yður skal ekkert mein gert ef þér vekið ekki setuliðið.« Stúlkan þurkaði sér um augun og svaraði: «Eg hélt að eg væri engin skræfa, en það var alt svo kyrt og þögult, og þér komuð svo skyndilega út úr myrkrinu, að eg verð að játa að eg hefi aldrei fyr orðið svo hrædd.» «Ungfrú, þér megið ekki tala svona hátt, þér vekið setuliðið.« Stúlkan hló hálfvandræðalega. »Setuliðið er þegar vakið — eg er setuliðið.« «Rér eruð þó líklega ekki ein hér í borg- inni?» «jú, eg var alein —■ þangað til að þér komuð, án þess að berja eða gera boð áund- an yður.« «Fagra mær,« sagði hann blíðlega, «eg verð að viðurkenna, að eg hefi komið fremur ókurteislega fram. En eg hafði búist hér við fleirum en einni stúlku. Voruð það þá þér, sem skáruð á kaðalinn?» «Já« »Og þér sem kveiktuð í púðurgryfjunni?« — Nú hló stúlkan fjörlega, og roðinn færðist aftur í kinnar henni. »Já, eg kveikti í sprengi- gryfjunni, en eg var svo ringluð, að eg hélt fyrst á eftir að eg hefði kveikt í skakkri gryfju. þér eruð víst foringi, eða svo álít eg, og eg verð að segja yður, að þér lituð út fyrir að verða eins hræddur þegar jörðin gleypti fall- byssuna yðar og eg rétt áðan.« «þér hafið þá gaégst yfir múrinn?« «Já það var hættulaust, því enginn ykkar hafði þá gætur á borginni, til þess voruð þið alt of niðursokknir í þessa skemtun er eg veitti ykkur. En hvernig komust þér hingað inn?» «Á sama hátt og reynt var í morgun, en þér ónýttuð. Það er einn sjómaður í sveit minni, og hann kastaði kaðlinum upp. Hann álítur að það hafi verið fjandinn sjálfur, sem kaðalinn skar í sundur, og verður líklega sæmi- lega forviða, þegar hann heyrir, að það hafi. verið hvítar engilshendur. » »f*ér eruð fagurmáll,« sagði ungfrúin, og horfði niður yrir sig.« En eg hefi heyrt sagt, að Englendingar taii fagurt en breyti illa.» »Sá sem það hefir sagt, hefir annaðhvort

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.