Nýjar kvöldvökur - 01.07.1908, Page 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1908, Page 9
BEN HÚR. 153 það; eg segi það þína eign í áheyrn ættar- höfðingjans. Eg set að eins eitt skilyrði: þú skalt hjálpa mér að Ieita upp móður mína og systur, og, ef í nauðirnar rekur, að leggja það í sölurnar, sem þú átt, eins og eg legg fram það sem eg á, til þess að finna þær.» Ester grét í hljóði . . . Ættarhöfðinginn strauk skeggið í ákafa. «Sonur Húrs» sagði Símonídes, og titraði í honum röddin, »eg þakka drotni að hann hefir Ieitt mig til þín, eins og þú ert . . Rér skal eg þjóna, eins og eg hefi þjónað föður þínum, með trú og dygð, að því er mínir kraftar megna. En eg get ekki þegið það, sem þú býður mér. Rú hefir ekki heyrt skýrslu mína til enda —lestu þetta.» Og hann rétti honum skjalið, sem hann hafði haldið eftir. Ben Húr las: «Skrá yfir þá sem eru Húr anauðugir, gefin af Símonídesi, þeim, er eign- unum stjórnar: 1. Amra hinn egyfzka. í höllinni í Jerú- salem, 2. Símonídes, framkvæmdarstjóri, í Antí- okkíu, 3. Ester dóttir Símonídesar ...» Ben Húr hafði aldrei dottið í hug, að lög- Utn samkvæmt féll dóttir undir ánauð föður S!’ns. Hann roðnaði við, og leit á Ester, og hún roðnaði líka og Ieit undan. Svo vafði hann sRjalið saman og sagði: »En eg dæmi ykkur laus, munnlega og skriflega ef þörf gerist — er það ekki?» Símonídes svaraði og brosti við: »Þú ger- lr ánauðina léttbæra; en mér varð mismæli áð- an, er eg sagði, að þú gætir gert alt sem þú v,ldir nú; löglega getur þú ekki leystokkurúr anauð —eg er og verð ánauðugur þér til dauð- ans.« 0g |iann sagðí aftur frá því, hvernig hann hefði gerst ánauðugur konu sinnar vegna. *En hvað á eg þá að gera? Hjálpaðu mér llu. Shnonídes, hjálpaðu mér með ráðum og °S dáð, til þess að eg geti minkunarlaust bor- nafn mitt.» "Eg skal hjálpa þér, sonur míns framliðna erra! Líkama hefi eg ekki; hann var örkuml- aður í þínar þarfir, en með höfði og hjarta skal eg þjóna þér —það sver eg við guðs alt- ari og við fórnargáfurnar á hans altari. Gerðu mig fyrst Iögum samkvæmt það, sem eg að lögum og rétti er: lögmætan forráðamann eigna þinna.« «Rú skalt verða mín hægri hönd, eins og þú varst hægri hönd föður míns.» «Svo er eg ánægður . . . Og þú, Ester . . . Tala þú Iíka.» Hún gekk fram eitt skref og horfði til jarð- ar og mælti: «Eg erekkifremri móðurminni® sagði hún í hálfum hljóðum við Ben Húr, «en af því að hún hefir yfirgefið okkur, þá Ieyf mér að vera hjá föður mínum og hjúkra hon- um.» »Ástríka barn» tautaði Ben Húr, tók í hönd henni og leiddi hana til föður hennar; «alt það sem þú óskar, skal verða.» Svo varð löng þögn. Símonídes virtist sokkinn í djúpar hugsanir. Loksins leit hann þó upp —og hann var ekki ódrottinmannlegri en fyr. »Ester« sagði hann, «nú fer að nátta; láttu bera inn hressingu, til þess að við getum verið sterkir og árvakrir til þess, sem eftir er að ræða um.» Hún sló á borðkiukkuna, stúlkan kom inn með brauð og vín, og bar það á milli. Á meðan sagði Símonídes frá því, hví hann hefði frestað því að kannast við Ben Húr og hvern- ig hann hefði Iátið Mallúk vera á hælum hon- um. «Hyggindi þín eru jafn djúp og mann- gæzka þín« sagði Ben Húr. Þegar þeir höfðu lokið að eta og drekka. hóf Símonídes aftur ræðu sína: «Vefarinn situr við vef sinn, skyttan þýtur fram og afíur óðfluga, dúkurinn lengist, og rósirnar stækka. Þannig uxu eignirnar undir minni hendi, og eg furðaði mig á því, hvað þær uxu. Æðri máttur var með mér. Sand- hríðirnar söktu fólkinu í eyðimörkunum — þæi sneiddu hjá mínum mönnum. Hafið braut skip- in í spón — rnín skip bar það greitt til hafnar. Og það, sem er undarlegast —eg, þessi hálf- dauða limahrúga, sem er bundinn við sætið 20

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.