Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 14

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 14
12 NÝJAR KVÖLDVÖKVR áhuga. Don Agústín taldi víst að leiðangur Don Estevans hefði hepnast, ef þessir menn hefðu verið með, og var Gayferos á því, Rós- aríta reyndi að vera köld og láta ekkert á sig fá, en gat ekki ráðið við gtampana í augum sínum. «Og þegar fram í sótti, fór mig að Ianga hér suður til átthaga minna, og þeir félagar vildu fylgja mér suður yfir landamærin. Ungi maðurinn var ekki fús til þess að fara í þá átt. Við lentum í útistöðum við lndíana á leið- inni, Indiana, sem sátu á leið okkar og vildu hefna á okkur ófara bræðra sinna. En við börð- umst við þá, og þeir urðu að láta ellefu lík eftir. Og þá gekk pilturir.n fram eins og sá maður, sem leitar dauða síns. Hann fékk stór, sár á höfuðið, og bar það eins og hetja.« «Sannar hetjur,« sagði Don Agústin fullur af vígmóði, og mærin hrópaði blóðrjóð og hugfangin: »F*að er fagurt, svona ungur og svona hraustur. — En fenguð þér að viia hvað þeir hétu, þessir menn?« «Já, sá elsti hét Bois Róse, annar hét Pepe en sá þriðji — bíðum nú við, —« Hann lézt vera að leita að nafninu; Rósar- íta var á nálum, fölnaði, og brjóstið gekk í bylgjum. «Jú, hann hét Fabían,» sagði Gayferos. Rósarítu brá eins og hún hefði mist af einhverri dýrlegri von; hún tók hendinni ti! hjartans, og tók upp hálflágt og dapurlega: «Fabían.» Pað nafn þekti hún ekki — ekkert annað en Tíbúrsíó. Pá komu boð til Don Agústíns frá heimilis- prestinum, að hann vildi finna hann. Don A- gústín gekk út. Gayferos var einn eftir hjá Rósarítu, og horfði á hana, þar sem hún sat titrandi af geðshræringu í silkislæðu sinni. Pað var eins og henni fyndist að hann ætti eitthvað meira eftir. Loksins sagði Gayferos undurlágt og blíðlega: »Fabían hét líka öðru nafni, sennora; viljið ]»ér heýra það á meðan við erum ein?« Rósaríta brá litum. «Ó, segið mér það,« hvíslaði hún. «Hann hefir lengi verið kallaður Tíbúrsíó Arellanos.« Rósaríta rak upp fagnaðarhljóð, sprattupp greip hönd Gayferos og þrýsti henni fast að brjósti sínu. «Guði séu þakkir,« sagði hún, »þó hjarta mitt væri búið að segja mér það.« Svo hljóp hún yfir salinn, óg að Maríu- mynd, sem þar var í gyltri umgerð, og féll á kné og fór að biðja. «Tíbúrsíó Arellanos er nú meira en tómur Fabían,« sagði gullfarinn, «hann er nú líka sá seinasti greifi af Medíana, stórauðugri og vold- ugri ætt á Spáni.« Mærin hélt áfram að biðja, eins og hún heyrði ekki orð hans. «Stóreflisjarðeignir, há völd og mannvirð- ingar getur hann lagt að fótum þeirrar konu sem hann elskar.« Rósaríta hélt áfram bæninni og leit ekki við. »Don Fabfan af Mediana hefir óbreyttar allar sínar tilfinningar, eins og meðan hann hét Tíbúrsíó Arellanos.« Rósrríta leit upp úr bæninni. «Tíbúrsíó Arellanos kemur hér í kvöld, ef þér viljið hlusta á orð hans.« Rósaríta stóð upp. Pað var Tíbúrsíó, en ekki Fabían greifi af Medíana, sein hún hafði grátið svo sárt. Hvað skeytti hún um tignar- titla og mannvirðingar — var henni það ekki nóg, að Fabían lifði og elskaði hana enn ? «Ef að þér vilduð ganga út að skarðinu í múrnuin, sem hann fór seinast út um, þeg- ar hann skildi við yður, þá munuð þér hitta hann þar í kvöld. Pér munuð ef til vill eftir staðnum, sem eg á við?« «Guð minn góður,« hvíslaði Rósaríta, «eins og eg gangi ekki út þangað á hverju kvöldi.« Og hún féll aftur fram og fór að biðjast fyrir. Gullfaranum fansl um, hvað húnvar.ynd- isleg, Hann var hinn glaðasti — og gekk út.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.