Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Side 15

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Side 15
GULLFARARNIR 13 Don Agústin fann dóttur sína einsamla á bæn þegar hann kom inn. Hann hélt hún væri að biðja fyrir sálarfriði Don Estevans, sem var <'dauður fyrir dómi drottins.« «Guð veri sálu hans náðugur,« tagði hann svo, «hann var stór sál og göfug, Don Est- evan de Arezhísa, eða réttara sagt, Don An- tonió de Medíana, hertogi af Armada, því að það var hið rétta nafn hans, Rósaríta.» »Medíana?« sagði mærin, «skyldi hann þá vera sonur hans?« «Sonur hans? hver?«, sagði Don Agústín forviða, «Don Estevan hefir aldrei kvænzt; hvað áttu við, barn?» «Ekkert, faðir minn, en eg er svo glöð í dag.» Og hún flaug upp um hálsinn áföðursín- um og fór að gráta. En þau tár voru ekki beisk. Don Agústin var ekki vel að sér í því að skilja hjörtu kvenna. Hann varð forviða á því að dóttir sín skyldi vera að gráta af gleði. En hún svaraði spurningum hans engu öðru en þessu einu: «Eg skal segja þér það á morgun.» «En eitt verðum við að gera,» sagði Don Agústín. íRað var síðasta ósk Don Estavans, þegar við skildum, að þú giftist Tragadúros, Það var deyjandi manns bæn, og hana verð- um við að gera. Er nokkuð því til tálmunar, Rósaríta ?» «Það var eins og hnífi væri lagt í Rósar- ítu, henni þyngdi um hjarta og hún fór aftur að gráta. «Nú nú,» sagði faðir hennar brosandi, «ertu nú ekki að gráta af gleði?» »Af gleði?« sagði Rósarfta beisklega, «æ, nei-nei,— Sem stenduryrði þetta gjaforð dauða- dómur dóttur þinnar.» Don Agústín varð flent við — hann varð bæði hryggur og reiður. «Hvað er þetta? sagði hann, «Hefurðu ekki játað því fyrir einum mánuði? Og hefirðu ekki sett frestinn þangað til víst væri um afdrif Don Estevans? Nú er hann dauður; á hverju stendur þá?» «Eg vissi þá ekki að hann var lifandi.» »Hvaða hann?« «Don Fabían de Medíana.» »Don Fabían? Hvaða Fabían ertu að tala um?» < Hann, sem við höfum áður kallað Tíbúrsíó Arellanos.» Faðir hennar glápti á hana steinhissa. Rós- aríta varð nú að gera það, sem hún gat til þess að koma föður sínum í skilning um það að Tíbúrsíó Arellr.nos væri nú orðinn Don Fa- bían, greifi af Medíana, auðugur, voldugur og háaðalborinn maður. þótt hann hefði hingað til verið álitinn fátækur og af lágum stigum. Og hann kvaðst hún elska og engan annan. Kvaðst hún hafa fengið þetta alt að vita hjá gull- faranum, sem komið hefði, eftir að faðir henn- ar var kominn út. Lét þá Don Agústín þegar fara að sækja hann, en þá var Gayferos horf- inn og fanst hvergi. Hafði hann þegar farið að hitta þá félaga sína. En Rósaríta gerði sitt til að mýkja föður sinn og fór svo út síðan. Og í sömu svifum heyrðist jódynur, og inn kom maður og bai- sig eins og sá, sem veit sig velkominn, eins og tilvonandi tengda- sonur, En hann sá óðara að Don Agústín var í alvarlegara lagi, og fór því að spyrja af hverju það stafaði. Don Estevan de Arechíza, hinn göfugi og góði vinur okkar, er dauður.» «A! er hann dauður?« sagði ráðherrann og brá klútnum sínum fyrir augun; «aumingjaDon Estevan! eg veit ekki hvort eg næ mér nokk- urntíma eftir það.» En sorgin var nú samt ekki sérlega djúp. Hann sá reyndar eftir þeirri tign og titlum, sem hann átti í vændum, en svo slapp hann við það að láta helming af heimanmund konu sinnar ganga í mútur. Það var þó munur að ganga að þeirri hálfu miljón sjálfur. Og svo flýtti þetta fyrir brúðkaupinu. »Aumingja Don Estavan,» tók hann upp aftur. «Það voru óvænt sorgartíðindi.» En með sjálfum sér fanst hon- um samt skaðinn lítill. Nú víkjum vér sögunni til Gayferos. Hann

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.