Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Síða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Síða 20
18 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Nú hafði hann svo vikum skifti hafst við úti í óbygðum og engan mann séð, nema svertingjann, sem hann hafði fengið fyrir leið- sögumann. Rað var hann, sem vissi af þessu veitingahúsi þar í skógarjaðrinum, og hann fu'lvissaði hús- bónda sinn um, að óhætt væri að gista þar, enda kæmu þar oft veiðimenn og menn í góðri stöðu, sem stundum færu þar um. Veitinga- maðurinn væri líka ráðvandur og að ölln leyti áreiðanlegur maður. Ressar fortöiur réðu úr- slitum, enda var doktorinn farið að langa til að koma til manna og fá fréttir af því, sem gerðist í heiminum, svo og að fá sér væna kollu af púnsi til hressingar eftir ferðavolkið. Grasafræðingurinn stökk því af baki og af- henti þjóni sínum hestinn og skundaði inn í veitingastof.ma. Eigi var þar neitt ánægjulegt um að litast. Herbergið var svart af reyk og allskonai lyður var þar inni. Rar mátti sjá svarta menn og rauða, brúna og gula, en engan hvítan mann sá hann þar, nema gest- gjafann og vakti hinn flóttalegi tortryggnissvipur hans ekki traust hjá gestinum. Hann settist því afsíðis út i h'orn, þegar hann var búinn að biðja um kvöldniat. Gestirnir sátu þar í stólum, bekkjum og.jafn- vel uppi á borðunum, drekkandi, syngjandi og jetandi. Sumir voru og að spila. Fáir þeirra veittu doktornurn eftirtekt, nema einn maður, sem gaf honum auga við og við, og það var líka sá maður, sem dró að sér langmest at- hygli aðkomumanns. Retta var hár og tígulegur Múlatli, með gáfuleg andlit sem lýsti óbilandi þreki. Hann tók þátt í teningaspili með áfergju og æs- ingu í svipbreytingum, eftir því sem heppnin snerist með honum eða móti. Hann var bezt klæddur allra þeirra, er þar voru inni. Klæði hans voru skrautleg og með sterkum litbreyt- ingum en þó fremur smekkleg. Svo leit út, sem hann væri þar fremstur maður og hefði mest peningaráðin, svo hirðuleysislega fleygði hann peningunum á borðið, þegar hann tapaði, og sópaði þeim ofan í pyngju sína, þegar hann vann. Æsing hans í spilinu átti því augljós- lega rót sína að rekja til metnaðar hans að vinna fremur en tapa. Rað voru ekki einasta ýmsir yfirburðir þessa velbúna Múlatta, sem vöktu eftirtekt doktors- ins, heldur einnig, þótt hann virtist taka þátt í spilinu með lífi og sál, þá tók hann engu síður nákvæmlega eftir öllu því, sem gerðist í kringum hann og hlustaði eftir viðræðum gest- anna. Skaut hann oft heppilegum athugasemd- um inn í samræður þeirra, er næstir honum voru, án þess að truflast í spilínu, og stöðugt var hann viðbúinn að svara hinum mörgu spurr.ingum, sem gestirnir að öðru hvoru beindu til hans, og altaf var gerður góður rómur að svörum hans og athugasemdum, eins og þær kæmu frá yfirboðara þeirra. Doktorinn þóttist því skilja, að Múlattinn hefði meira en lítið að segja tijá þessum lýð, sem þar var inni. Meðan hann var að snæða kvöldmatinn og sötra púnsið, fór það að að rifjast upp fyrir honum, að hann mundi hafa séð þenna gjörvu- lega mann áður. Hann mundi ekki hvar, hvort það hefði verið á kaupstefnu í einhverju verzl- unarþorpi, eða hann hefði rekist á hann úti á hinum óbygðu sléttuni. Rað kom ekld til neinna mála, að manninn hafði liann séð, þeuna tign- arlega höfuðburð, þessi hvössu augu, sem alt- af voru hálflokuð af hinum löngu augnahárum, en eldur virtist brenna úr, er þau opnuð- ust. Hann fann, að hann kannaðist við hina miklu yfirburði, sem þessi maður virðist hafa fram yfir alla menn, er hann hafði séð þar í landi. Múlattinn hafði líka veitt honum eftirtekt. Hann horfði á hann hvössum augum, þegar liann kom inn, og hann gaf honum við og við gætur með því augnaráði, sem doktornum fanst alt annað en þægilegt, og eigi var laust við að vekja hjá honum beyg og kviða. Regar haun hafði matast, skundaði hann út úr húsinu, til þess að losast við athygli Múlattans. Úti var fagurt haustveður og kyrt. Rað sá í hinn stjörnuskreytta heiða himin gegnum lauf-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.