Nýjar kvöldvökur - 01.01.1917, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1917, Blaðsíða 28
24 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. IV. Hólmfríður svaf lítið um nóttina. Hún var of harmþrungin til þess og of veik. Ró fann hún hvergi neitt til, hvergi neinn sársauka eða þrautir. En hún var undarlega þreytt og mátt- lítil, eins og lífseldurinn væri að slokna. Undir morguninn sofnaði hún stutta stund. Regar hún vaknaði, var vinnukonan að koma á fætur. Hún gekk inn til Hólmfríðar og spurði um iíðan hennar. Henni ieið vel, var mátt- iaus, en það mundi batna fljótlega. Hún bað vinnukonuna að segja Hermanni, þegar hann kæmi á fætur, að hún bæði hann að tala við sig. En það var komið langt fram á dag, þeg- ar Hermann reis úr rehkju. Hann leit út um gluggann og sá að veðrið var Ijómandi fagurt. vÚtreiðarveður í dag! Gott fyrir mig en veira fyrir Sörla !« Hann byrjaði að klæða sig letilega en vandlega. Þegar hann var hálfklæddur, kom vitinu- konan með boð frá móður hans. Hann kvaðst skyldu koma, en leit ekki upp úr speglinum. Hann var að hnýta á sig bindið, gjöf frá Hildi. Vinnukonan stansaði í dyrunum. Hún bjóst við, að Hermann mundi spyrja um líðan móð- ur sinnar. En þegar ekkert varð af því fór hún. Er hann þóttist alklæddur gekk hann ofan úr herbergi sínu og út. Gulur kom hlaupandi móti honum með miklum fagnaðaðarlátutn, og flaðraði með óhreinar Iappirnar upp á bringu á honum. »Hvaða helvítis óþverri ertu !« Hermann sparkaði í hann, svo hann ýldi af sársauka. Gulur hafði verið uppáhaldið hans, meðan hann var heima, svo honum kom þetta ókunn- uglega fyrir, Hann horfði stórum votum aug- um á Hermann. Pórður kom utan túnið í þessari andránni. Hermann kallaði til hans: »Heyrðu Rórð- ur: Sörli verður að vera kominn heim eftir eina klukkustund.® »Ætlarðu að sækja læknirinn til mömmu þinnar?« spurði Pórður. Honum fanst það líklegra, en að hann ætlaði í skemtiferð. Hermanni féll allur ketill í eld, Pað hafði honum ekki komið til hugar. Skyldi móðir hans vera svo lasin, að þess væri þörf. »Eg veit ekki,« ansaði hann að lokum. »Ef henni sýnist.« Haiin vildi ógjarnan játa það, að annað hefði verið augnamiðið með hest- sókninni. »SörIi er hérna upp í Teignum, og getur verið kominn heim eftir stutta stund,« mælti Pórður. »Pað er gott,« ansaði Hermann, og snéri við inn í húsið og til herbergis móður sinnar. Pegar hann kom inn í herbergið stansaði hann ósjálfrátt. Oft og einatt hafði hann hugsað um það, þegar hann var barn, hve móðir hans var oft föl og þreytuleg. En aldrei hafði hann séð hana svona föla. Pað var eins og dauðinn sjálfur hefði lagt yfir hana nákalda hönd. Hún snéri sér fram í rekkjunni, og flétturnar miklar og mjallahvítar lágu ofan á sænginni. »Góðan daginn, mamma! Hvaða ósköp ertu föl!« »Góðan daginn, barnið mitt. Eg er orðin biðukolla, eins og sumir fíflarnir í túninu.« Hún reyndi að brosa. »Pér batnar bráðum, mantma, heldurðu það ekki?« »Það skulum við vona, ða minsta kosti.« »Finst þér ekki réttast, að eg vitjaði lækn- is?« spurði Hermann. Hann vildi verða fyrri með þá uppástungu en Pórður, »Nei, Hermann, ef mér getur ekki batnað án þess að læknir sé sóttur, þá fæ eg ekki bata.« »Þá er eg að hugsa um að bregða mér eitthvað hérna fram í dalinn á Sörla. Hvernig líst þér á það, mamma ? Það er afbragðs veð- ur, alveg óguðlegt að nota það ekki.«
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.