Nýjar kvöldvökur - 01.01.1917, Blaðsíða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1917, Blaðsíða 46
42 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. hennar bytnar mest á manninum, sem búast niá við, enda er hún hrædd um hann í tilbót. En Þórður — svo heitir maðurinn — er getinn fyrir bækur og ritstörf, og leitar sér fróunar í því þegar hann á einhverja frístund. Hann snýr sér að trúmálum, og heldur fyrirlestur um þau, og þó að fyrirlestur hans sé heldur léleg- ur og lítt hugsaður, verður þetta þó til þess, að kaupmaðurinn og fólkið þarna í kaupstað- arholunni snýst á móti honum. Hann hafði reynt líka að koma á samtökum meðal verka- manna í þorpinu, og bætti það ekki um. Hann fær ekki vinnu, og svo á hann enga björg í kofanum, og enginn vill hjálpa honum. Alt verður til að gera honum lífið óþolandi. Hann ranglar svo út með fjöru í ráðleysu, hungraður magur og hugstola, blotnar í fæturna, fer heim, veikist og deyr. Pað er svo margt í sögu þessari svo átakanlega satt og rétt, að það er eins og upplifað, en margt af því hefð þurft að færast betur út en gert er. Yfirleitt tekur þetta kver talsvert fram hinu fyrra, og er þess vert, að eptir því sé tekið. Rrjú kvæðakver hafa komið Kv.v. fyrir augu, sem prentuð hafa verið í haust og vet- ur. Rað sannar um það, sem þær hafa sagt fyrri, að það ryðst ofmikið inn á bókamarkað vorn af þessum Ijóðakveðskap. Við höfum nú um langan aldur átt svo margt af ágætum ljóð- skáldum, og eigum enn, að nú orðið á ekki erindi inn á markaðinn annað en það sem er verulega gott og veigamikið. Hitt hverfur hjá, og er ekki nema kostnaðarauki fyrir úlgefanda og þjóð, að vera að gefa það út. Það er hvort ið er ekki nema eftirhljómur af því, sem aðrir eru búnir að segja á undan, og sumt margoft. Kver þessi, sem hér koma til greina, eru: 1. Ljóð og sögur eftir Axel Thorsteinson. 2. Rúnir eftir Magnús Gíslason, og 3. Ljóð eftir Gísla Ólafsson. Ljóð og sögur Axels Thorsteinsonar — hann er sonur Steingríms Th. og bráðungur maður — eru lagleg, en ekki meira. Kvæðin eru lipurt kveðin, en eru æði einhæf að efni; nærfelt tóm ástakvæði, og kennir þar mest sorg- arinnar og vonbrigðanna, sem verða mörgum ungum mönnum syo tilfinnanleg, að þau reka þá á bak Pegasus til þess að létta af sér með eium eða tveimur sprettum. Sögurnar aftan við eru betri en kvæðin, tilþrifameiri og taka líka dýpra á. Pað eru tilraunir til að kafa djúpt inn í sálar — eða öllu heldur tilfinningalíf manna þeirra, sem um er að ræða, og það tekst sumstaðar furðu vel. Efnið er að vísu víðast hvar lítið, enda eru sögurnar stuttar en alstaðar vel með farið. Einna sterkast tekið á efninu í »Forherðing« en tæplega útfærteins og skyldi. Heldur er unglingsbragur á öllu kver- inu, og líklegast að höf. hefði kastað ýmsu í blaðakörfuna að 5 árum liðnum, ef þá ætti að gefa það út. En það leynir sér ekki, að mað- urinn er efni í skáld, og það í góðskáld, þeg- ar hann þroskast betur, og þegar hann losast út úr tilfinningahringiðu æskumannsins. Runir Magnúsar Gíslasonar eru 46 smá- kvæði ýmislegs efnis. Mörg af þeim, og eg held flest, eru þau laglega ort, án nokkurra til- þrifa, og ekki gat eg fundið þar neina hugs- un, sem eg kannaðist ekki við áður, þó hún hafi verið sögð öðruvísi. Kraft vantar til að segja nokkuð sem kemur flatt upp á mann. Honum er ofviða að yrkja um ófriðinn mikla, getur ekki komist ofan á að finna þessar skerandi mótsetningar, sem ófriðurinn leiðir í Ijós. Sumt er aftur mjög laglega sagt t. d. vísurnar til Torfa í Ólafsdal. Og það má hann eiga, og vera sagt til hóls, að alt sem hann kveður er blátt áfram, Ijóst og lipurt, alveg laust við þetta hlægilega tildur af dularfullum orðum og hálf- sögðum hugsunum, sem sum ungu skáldin temja sér nú, botna ekkert í sjálf, en halda að sé ótvírætt merki upp á sannan skáldskap, og stæla Einar Benediktsson og Stefán G. Stephán- son í líf og blóð. Pað má vera þeim fari það vel, en það eru ekki öllum sniðnar þeirra flíkur. Og eitt er víst, að Hannes Hafstein þarf ekki þeirra flíka við til að vera langfremstur nú- verandi skálda vorra, enda notar hann þær ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.