Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Page 14

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Page 14
6 NÝJAR KVÖLDVÖKUR II. Vogur og Naust. Sandvogur var ekki ásjálegt kauptún á árunum 1870—80, því að auk bæjanna tveggja, Efra-Vogs og Neðra-Vogs, og verzlunarhúsanna voru þar sárfá hús á stangli og nokkrar gamlar verbúðir niður við sjóinn. En svo fór eitt og eitt hús að bætast við, svo að smám saman óx byggðin og fór að eiga það skilið að kallast verzl- unarstaður. Verzlun hafði verið rekin þar um langan aldur af útlendu félagi og enginn hafði dirfzt að reyna til að keppa við hana. Verzlunarstjórinn, sem allt af var kallaður »faktorinn« og aldrei annað, var því mjög voldugur maður, sem allir báru mikla virðingu fyrir. — Jörðin Neðri-Vogur var þá skift á milli þriggja eða fjögra ábúenda, en í Efra-Vogi bjó sýslumaðurinn og þar var kirkjan. Sigurður sýslumaður hafði búið þar þrjú ár, þegar þessi saga byrjar. Hann hafði komið þangað beina leið úr ein- hverri stjórnarskrifstofunni í Kaup- mannahöfn, nýlega kvæntur, hafði keypt jörðina, farið þegar að húsa hana upp og komið upp allstóru búi. Mönnum var enn í fersku minni koma þeirra sýslumanns- hjónanna í Voginn. Á kyrrum vormorgni hafði gufuskipið lagst og faktorinn hafði sent fram stóra bátinn. Svo hafði bátur- inn komið aftur að bryggjunni og sýslu- mannshjónin og vinnukona þeirra gengið upp í faktorshúsið. Sýslumaðurinn var vel meðalmaður, fremur feitlaginn, með gildan staf í hendi, klæddur einkennis- búningi. Frú Valgerður grannvaxin, föl eftir sjóveiki og svo máttfarin, að maður hennar varð að styðja hana; hún var svo einkennilega klædd, að fólkið var alveg hissa og kímdi sín á milli. Kjóllinn var aðskorinn að ofan og neðan, en um mjaðmirnar var hann í allteinum felling- um; hárið var sett upp í hnút, en toppur í enni, og svo var dökkt silkiband bundið um höfuðið, með hnýti yfir enninu. Eng- inn hafði séð annan eins búning fyr á æfi sinni! Vinnukonan var líka klædd eft- ir útlendri tízku og hélt hún á dóttur þeirra hjónanna, misserisgamalli. — Og svo þegar þau fluttu inn í gamla bæinn í Efra-Vogi, fóru að byggja upp og draga til bús, þá varð mörgum á að hrista höf- uðið og segja: »Þau held eg kunni að búar þessi!« En efasemdir og hrakspár urðu að engu með tímanum. Sýslumannshjón- in sýndu það fyllilega, að þau stóðu öðr- um á sporði í þeim efnum. Sýslumaðurinn var svo glæsilegur og alúðlegur maður,. að hann hlaut bráðlega þá virðingu al- mennings, sem stöðu hans sómdi; en fyrsta áriðaðminnstakosti var ekki laust við að fólk hefði gaman af að skopast að frúnni í laumi. Það gat ekki skilið, að þessi hægláta, föla kona, sem sjaldan kom á mannamót og lítið lét til sín taka, hefði nokkra verulega mannkosti að geyma. En sumarið eftir kom gufuskip á Voginn og þar var á ferðinni hvorki meira né minna en landshöfðinginn sjálfur í eftirlitsferð. Það var uppi fótur og fit, allir þustu ofan að bryggju til þess að sjá þenna tigna gest og hvernig sýslumannshjónunum færist að taka á móti honum. Þegar bát- inn bar að, hafði landshöfðinginn stigið upp á bryggjuna, — höfðinglegur maður í gráum frakka, með kollháan, brúnan hatt á höfði og hanzka á höndum; — hann tó'k ofan hattinn, rétti frúnni hend- ina og sagði hátt og skýrt: »Komdu sæl, frændkona.« Svo hafði hann gengið upp að Efra- Vogi og verið þar fram undir kvöld, og þegar hann fór, kvaddi hann frúna virðu- lega á bryggjunni, með háa hattinn í hendinni, -— meira að segja hafði hann staðið upp í bátnum á leiðinni fram í

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.