Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Side 15

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Side 15
STAKSTEINAR 7 skipið og tekið enn ofan. Minna mátti riú gagn gera! Þessi merkisatburður gerðist hálfum mánuði fyrir réttirnar; einn sagði öðrum fregnina, svo að hún bergmálaði á milli hrjóstra og hrauna, ása og annesja: »Sýslumannsfrúin er frænka landshöfð- ingjans — frænka landshöfðingjans — landshöfðingjans!« Á réttunum barst fréttin fram á fremstu kotin. Vorið eftir kom franskt rannsóknar- skip á Voginn. Skipstjóri átti eitthvert erindi við sýslumann og um kvöldið voru allir yfirmenn skipsins í boði uppi í Efra- Vogi. Menn vissu raunar lítið um, hvað þar fór fram, en það höfðu menn fyrir satt, að frú Valgerður hefði talað svo reiprennandi við Frakkana, að maður hennar hefði varla komist að. Svo höfðu þau verið í boði úti í skipinu daginn eft- ir. En eftir það að ættgöfgi frúarinnar og afburðamenntun varð heyrinkunn, minntist hennar enginn nema með stakri virðingu, því frernur sem allir sáu, að ekki hafði verið flaggað með yfirburðina að fyrra bragði. Það kom brátt í Ijós, að Sigurður sýslu- maður var búmaður meiri en í meðallagi. Hann gaf sig með því lífi og sál að hey- skap og hestum, kúm og kindum, að menn féllu í stafi, og þótt margir litu kímnis- augum á sumar tiltektir hans í búskapn- um, þá urðu þeir að kannast við að þar fylgdist að gáfa og geta, og svo var hann glöggur á fjármál öll, að þar stóðu honum fáir á sporði. Embættið rækti hann nokk- uð á annan hátt en menn voru áður vanir. Ekki svo að skilja, að reikningar allir væru ekki færðir með mestu nákvæmni og riart gengið eftir gjöldum; en þegar um málaferli eða ákærur var að ræða, þá varð aldrei neitt úr þeim í höndum sýslu- ^oanns. Hann hafði það einstakt lag á því sýna mönnum fram á, að deilur, illindi og glæpamál svöruðu ekki kostnaði, og að allt slíkt væri miklu betra að þagga niður í kyrþey, — enginn græddi neitt á sektum, ærumissi eða fangavist. Og menn sönsuðust á þetta, oftast nær með góðu. Að vísu komu mörg deilumálin og ákær- urnar til sýslumanns kasta eftir sem áð- ur, en menn sættu sig við að ganga út frá því sem gefnu, að allt yrði jafnað heima hjá honum, án sekta og sakfellinga. Smábrotinn var búskapurinn í Nausti framan af hjá þeim Þorleifi og Guðrúnu, en þau bösluðust betur af en á horfðist. Margur spónninn og bitinn áskotnaðist þeim frá Efra-Vogi, en fyrsta sumarið unnu þau líka svo að segja að staðaldri fyrir sýslumann, bæði úti og inni. Þor- leifur reitti úr sjó, þegar eitthvað var að hafa, og þeim hjónum fannst að þau hefðu oft átt verra en þá. Þau komust á snoðir um að sýslumannsfrúin hélt mikið upp á nýtt heilagfiski, og í hvert sinn, sem Þorleifur dró lúðulok, labbaði hann með það upp í eldhús í Efra-Vogi, lagði það á borðið og mælti: »Guðrún mín bað kærlega að heilsa frúnni og bað mig að færa henni þessa lúru«, — og þá fór hann aldrei tómhent- ur aftur. Sýslumaður komst að raun um, að Þor- leifur gat verið honum þarfur þjónn, sérstaklega í fjósinu; hann dáðist hreint og beint að því, hvað Þorleifur var fljót- ur að kynnast kúnum, hvað hann gat ráð- ið í þarfir þeirra, munað talið þeirra upp á viku og dag, og hvað annað, sem nauð- synleg-t var. Það fór því svo um haustið, að Þorleifur var ráðinn til að gera fjós- verkin að mestu; var það ærið starf kvölds og morguns, en miðbik dagsins gat hann notað til eigin starfa. Eftir tillögum frúarinnar hlóð hann. vegg við pallendann yfir þvera búðina, með hurð og stöfum, svo að miklu vist- legra var þar eftir en áður. Þorleifur var

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.