Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Qupperneq 21

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Qupperneq 21
STAKSTEINAR 13 í sláturtíðinni á haustin var æfinlega mikið um atvinnu við verzlunina og þá var öll fjölskyldan frá Nausti önnum kafin þar. Þorleifur vann þar ýmis smá- vik, Guðrún þvoði innan úr og Guðmund- ur fór að gæta kinda og hesta, þegar hann hafði aldur og þrek til. Sláturtíðin var Þorleifi aðalhátíð ársins; þá gafst margt brennivínstárið frá bændum og verzluninni, svo að hann gat haldið »af- mæli« marga daga í röð. Þá fékk hann sig allt af lausan frá fjósverkunum um tíma, til þess að hafa upp sem mest kaup. Haustið, sem Guðmundur varð tólf ára, var óvenju-mörgu fé slátrað hjá faktorn- um. Eitt laugardagskvöld, í endi slátur- tíðar, var mjög mikil ös við verzlunina og varð að hafa opna búð fram eftir kvöldi til þess að geta afgreitt sveitamenn. Veð- ur var stillt og hlýtt, þéttskýjað og dimmt til jarðar. Guðrún fór heim, þegar hún hafði lokið sínum verkum, en Þorleifur varð eftir; var hann sætkenndur, lék á •als oddi, vildi helzt kyssa hvern, sem hann hitti og hendu því margir gaman að honum. Guðmundur var orðinn hálf-upp- gefinn af eltingaleik við kindur og hesta; kom hann í myrkri inn í sölubúðina og settist á tunnu fram við dyr; ætlaði hann -að bíða þar, þangað til faðir hans færi heim. Margt manna var í búðinni og voru búðarþjónar önnum kafnir við afgreiðsl- una. Sá Guðmundur þar margan eiguleg- •an hlut og margan sælgætisbitann hverfa ofan í töskur og poka. Meðal annara var þar staddur efnabóndi ofan úr Ásasveit, Hallgrímur að nafni, og hafði tekið 'drjúgum út til bús síns allskonar þunga- vöru, sem hann lét pilta sína binda í klyfjar. En að lokum tók hann ýmislegt til bragðbætis konu og börnum, svo sem rúsínur, gráfíkjur og hagldabrauð; nokk- ur barnaleikföng lét hann fljóta með. "Öllu þessu dóti tróð hann niður í tösku sína og hafði orð á því að sér veitti ekki af að fara snemma af stað næsta morgun, ef hann ætti að komast með þetta heim, áður en börnin yrðu sofnuð. Guðmundur sá og heyrði það, sem fram fór og var að hugsa um, hvað börnin í Dal ættu von á góðu og að gaman væri að eiga svona efnaðan mann að föður; hann kærði sig ekkert um að eiga betri föður en hann átti, því að góður var hann honum æfin- lega, en gjarnan hefði hann mátt vera efnaðri. Já, gott áttu börnin í Dal, að eiga von á öðru eins góðgæti og því, sem í töskunni var. Hann var að velta þessu fyrir sér nokkra stund, en fór svo að svipast að föður sínum; hann sá hann hvergi og hélt þá að hann hlyti að vera genginn heim. Guðmundur hélt af stað heim á leið. Þegar hann fór um hlaðið í Neðra-Vogi, sá hann að Hallgrímur í Dal var að láta hesta sína inn í kofa yzt á hlaðinu, en töskuna sína og hnakkinn hafði hann lagt frá sér til bráðabirgða á hefilbekk, sem stóð í stórri tréspónahrúgu við suð- urstafn baðstofunnar. Guðmundur nam staðar; hitabylgja hljóp um hann allan, þegar hann sá töskuna og svo fór hann að titra. Freistandi rödd hvíslaði ofurlágt í eyra honum: »Taktu hana! Taktu hana! Fljótur og feldu hana!« Hallgrímur var kominn inn í kofann til hestanna og ekki sást né heyrðist til nokkurra mannaferða í dimmunni. Guð- mundur svitnaði og saup hveljur. »Flýttu þér, flýttu þér!« hvíslaði rödd- in; »aldrei býðst þér annað eins færi, — þú yrðir byrgur að öllu hnossgæti í lang- an tíma, — flýttu þér nú!« Guðmundur stóð á öndinni, tók undir sig stökk, greip töskuna og þaut út í myrkrið eins og kólfi væri skotið; hann linnti ekki á hlaupunum fyr en hann kom að ofurlitlum torfbunka vestan við

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.