Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Qupperneq 25

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Qupperneq 25
FRANS FRÁ ASSISI 17 friðrik J. Rafnar. Saga hins heilaga Frans frá Assisi. (Sniðin eftir bók Jóhannesar Jörgensens o. fl. ritum). (Framh.). Þess var heldur engin von. Slík g'jör- breyting á andlegu lífi og lifnaðarháttum, sem síðar varð hjá honum, gat ekki gjörst í einu vetfangi. Fyrst varð hann gagn- tekinn af hinu hættulega hugarástandi hins sjálfsréttlætandi Farisea. Hann finnur léttvægi heimsgæðanna, en verður þá fyrst að líta með fyrirlitningu og sjálfsþótta til vina sinna, sem ennþá ekki skilja fánýti þeirra. Og smátt og smátt eftir því sem kraftarnir ukust og heilsan batnaði, sótti í sama horfið og áður. Hann fór að taka þátt í glaðværð og fé- lagslífi fyrri vina sinna, en var nú breytt- ur að því leyti, að hann fann enga ánægju í því lengur. Hann var altekinn af ein- hverri innri órósemi, bar eitthvert ógró- ið sár 1 sálu, sem altaf sveið. Lífið heima hjá foreldrunum, meðal vinanna í fæðing- arbænum, gaf honum ekki það sem hann þráði. Hann dreymdi um stórvirki, æfin- týri og athafnir í fjarlægum, framandi löndum. Áður en hann sýktist, hafði geysað borgarastyrjöld í Assisi. Deildu þar borg- arar og aðall og veitti borgurum betur tyrst í stað. Gátu þeir eyðilagt hallir og riddaraborgir aðalsmannanna sumra, en öðrum héldu borgarar inniluktum. Þá báðu aðalsmenn borgríkið Perugia um bjálp og lofuðu aftur á móti að verða þeim skattskyldir. Gjörði nú Perugia út her manns til hjálapr hinum aðþrengdu aðalsmönnum, en borgararnir í Assisi og aokkrir lýðhollir aðalsmenn, sem sáu frelsi borgar sinnar í veði, snerust til varnar. Mættust herirnir við brú hins heilaga Jóhannesar skammt frá Assisi. Stóð þar blóðugur bardagi og biðu Assi- simenn fullan ósigur. Var fjöldi þeirra handtekinn, og meðal annara Frans. En vegna glæsimensku sinnar og prúð- mensku, var hann settur í fangelsi með aðalsmönnum. Sat hann nú í varðhaldi í Perugia í heilt ár. Vistin þar með aðals- mönnum hafði mikil áhrif á hann. Þar virðist hann hafa sogið í sig ástina til riddaramensku og íþrótta og yfirleitt alls þess, sem einkendi líf þáverandi aðals- og lénsmanna. Eftir heimkomuna steypti hann sér fyrst af alvöru út í þá hringiðu nautna og gleðskapar, sem sjúkdómurinn dró hann upp úr um stund. Þegar Frans var svo orðinn heill heilsu aftur, fór riddaramenskan að standa fyr- ir hugskotssjónum hans eins og eina leið- in að því marki, sem sála hans þráði. Hann var nákunnugur riddarasögum þeirra tíma, kunni utanað söguna um Arthur konung og riddarana við kringl- ótta borðið. Nú skaut upp í huga hans þránni eftir að verða einskonar Grals- riddari, fara út um allan heim og fórna blóði og kröftum í þágu heilagra málefna og koma svo heim aftur krýndur heiðri og ódauðlegum frægðarljóma. Um þetta leyti var agasamt mjög í í- talíu. Svo stóð á, að ekkja Hinriks keis- ara 6. hafði falið Innocentiusi páfa III. stjórn suður þar, meðan sonur hennar, er 3

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.