Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Síða 35

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Síða 35
SÍMON DAL 27 Hún mætti augnatilliti hans með g’óð- látlegum, næstum því vingjarnlegum svip. Hann rétti aftur út höndina í áttina til hennar og mælti: »Barn, getur þú «kki skilið? Nei, hjarta þitt er forhert, en eg bið Krist, Drottinn vorn, að opna augu þín og mýkja hjarta þitt, svo að sál þinni megi auðnast að verða frelsuð!« Nelly horfði á neglur sínar með einkennilegri nákvæmni og sagði: »Eg veit satt að segja ekki, hvort eg syndga svo miklu nreira en margir aðrir. — Þér ættuð að taka yður fyrir að prédika yfir hirð- inni«. Við þessi orð var eins og hann yrði gripinn af einhverskonar æði. »Hirðinni skal verða boðað orðið!« æpti hann — »og það af raust, sem sterkari er en mín. Bik- arinn er fullur — mælir synda þeirra fullur svo út úr flóii'. Allir, sem lifa, nrunu fá að sjá!« »Já, það er ekki ólík- legt«, svaraði Nelly, eins og til að segja eitthvað. En svo brá fyrir kátínuglampa í augunum: »En hvernig haldið þér að fari nú fyrir honum Símoni, sem stendur hérna?« spurði hún. Hann hrökk saman og sneri sér að mér. Hann hafði auðsjá- anlega gleymt, að eg var viðstaddur. »Þessi ungi maður?« mælti hann og horfði beint framan í mig — »hann hefir serlegt andlit; ef hann velur vini sína vel, þá mun honum og farnast vel«. »Eg er á nreðal vina hans«, sagði Nelly. »Hvað þig áhrærir, kona, þá bið eg Guð um að hann mýki hjarta þitt«, mælti Phineas. »Sumir halda nú fram, að það sé altof mjúkt«, svaraði Nelly. »Þú skalt fá að sjá mig aftur«, mælti hann og gekk til dyranna, ori áður en hann færi út sneri hann sér við og virti mig enn einu sinni mjög vandlega fyrir sér. Að því búnu fór hann át og lét okkur tvö ein eftir. Nelly andvarpaði eins og létt væri af henni fargi. Hún teygði upp handleggina og lét þá falla niður á borðið; svo stökk hún á fætur, hljóp til mín og greip báðar hendur mínar. »Símon!« hrópaði hún — »líður ekki öllum vel í Hachtstead?« »Eg losaði hendur mínar, gekk eitt skref aft- ur á bak og mælti hátíðlega: »Ungfrú, þetta er ekki Hachtstead — og mér sýn- ist þér ekki vera sú sama stúlka, sem eg þekti í Hachtstead«. »Nei, hvað segið þér — ekki sú sama? En mér sýnist þér vera mjög líkur vissum manni, sem eg þekti þar -— og þekti vel!« svaraði hún. — »En eruð þér líka kominn til þess að predika yfir mér?« »Eg þakka yður fyrir að þér munduð eftir mér,« sagði eg með kaldri kurteisi — »og sérílagi fyrir þá vinsemd, að þér hafið beitt áhrifum yðar í mína þágu. Eg met það mikils við yður, þrátt fyrir, að eg get ekki tekið á móti því.« »Þér getið ekki tekið á móti því? Hvað — þér ætlið að neita að taka við liðsforingja- stöðunni?« hrópaði hún. »Eg hefi hugsað mér það,« svaraði eg og hneigði mig djúpt. Andlit hennar var eins og á barni. sem verður fyrir vonbrigðum. »Og þér hafið hendina í fatla — eruð þér særður? Hafið þér lent í deilum nú þegar?« »Nú þegar!« Eg hneigði mig aftur. »Hvers vegna — og við hvern?« »Við Carford lávarð. Eg vil ekki vera að þreyta yður með að skýfa frá ástæðunni,« svaraði eg. »En mig langar til að heyra hana!« »Nú það var út af því að lávarðurinn sagði, að mistress Gwyn hefði útvegað mér stöð- una«, mælti eg. »En það var líka satt!« »Auðvitað, en eg barðist samt við hann«. »Hvers vegna — þegar það var satt?« Eg svaraði ekki, og hún settist upp á borðið og leit á mig með augnaráði, sem lýsti bæði undrun og þjáningu. »Eg hélt, að þetta mundi gleðja yður svo, Símon«, sagði hún auðmjúk. »Eg hefi aldrei verið svo stoltur, sem eg var þegar eg fékk bréfið — og eg held aldrei svo hamingju- samur, nema — nema þegar eg gekk með 4*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.