Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Qupperneq 47

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Qupperneq 47
SÍMON DAL 39 legubekkinn við hliðina á mér og hló bæði lengi og hjartanlega. — »Þetta var svei mér vel af sér vikið!« hrópaði hann, þeg- ar hann náði andanum. »Eg vildi gefa þúsund krónur til þess að hafa getað séð framan í karlana!« Eg stökk upp hissa og vandræðalegur, því nú þekti eg að þessi ungi maður var enginn annar en hertog- inn af Monmouth. »Sitjið þér maður!« ■ sagði hann og kipti mér niður á legubekk- inn aftur. — »Eg stóð á bak við tjaldið 'Og heyrði alt saman. Guð veri lofaður að ®g gat haldið niðri í mér hlátrinum þang- að til þeir voru farnir. — Réttindi og frelsi ríkisins og hin endurbætta trú! Þetta er saga, sem konungurinn þarf að fá að heyra — honum verður skemt!« »f Guðs bænum, yðar hágöfgi«, hrópaði eg í örvæntingarróm; »þér megið ekki segja konungi frá þessu! Eg er nú þegar eyði- Jagður maður!« »Já, það eruð þér í aug- um míns ágæta föðurbróður. — Þér eruð nýr maður hérna við hirðina, mr. Dal!« »Já, sorglega nýr«, svaraði eg aumkunar- lega, og hann veltist enn einu sinni um af hlátri. — »Þér hafið auðvitað ekki heyrt þær hneykslissögur um hei-togann, föður- bróður minn, sem segja, að hann unni ensku kirkjunni ekkert heitara en rétt- indum og frelsi ríkisins?« spurði hann •svo. »Nei, það segi eg satt!« svaraði eg. »Og Arlington lávarður«, hélt Monmouth áfram — »jú, jú, eg þekki hann — hann hélt í hönd yðar til þess síðasta — og svo brosti hann til þess síðasta — gerði hann það ekki?« »Vissulega, sir, lávarðurinn sýndi mér rnikla vinsemd«. »0, eg þekki ■aðferðir hans. — Mr. Dal, þetta var svo Vel af sér vikið, að eg héðan af vil kalla yður vin minn. Við skulum nú fara til konungsins með söguna!« Hann spratt UPP og dró mig með sér. »Yðar hágöfgi Verður að afsaka mig...« byrjaði eg. »Nei, sannarlega vil eg ekki!« hló hann. En svo varð hann alvarlegur á svipinn: »Eg stend einnig á réttinum og frelsi ríkisins og öryggi hinnar endurbættu trúar. — Erum við þá ekki vinir?« »Yðar hágöfgi gerir mér altof mikinn heiður«, svaraði eg. »Haldið þér ekki að gott geti verið að eiga mig í vinar stað? Eg er þó elzti son- ur konungsins«. Hann rétti úr sér með þeim yndisleika og tignarsvip, sem fór honum svo forkunnar vel. — Oft þegar eg nú á seinni ánim hugsa um hann, þá stendur hann mér fyrir hugskotssjónum eins og hann var þá, og mér hlýnar um hjartaræturnar. — Hvað sem um hann er hægt að segja, þá er það samt víst, að viðmót hans kom mörgum til að unna honum hugástum og margir hefðu gengið í dauðann fyrir hann, þótt þeir hefðu ekki viljað hreyfa minsta fingur fyrir föður hans eða föðurbróður. í næsta augnabliki varð eg honum þó sárgramur: Á leið okkar mættum við Barböru Quinton við hönd Carfords lá- varðar. ósamlyndið á milli þeirra virtist nú á enda, því þau voru í fjörugri sam- ræðu og skemtu sér auðsjáanlega vel. Þegar hertoginn kom auga á hana, yfirgaf hann mig og hljóp til móts við hana. Hann ýtti Carford blátt áfram til hliðar og tók nú að hrósa fegurð hennar og framkomu í orðum, sem frekar sýndu hrifningu hans en virðingu fyrir henni. Með mig hafði hún farið, eins og væri eg drenghnokki, en hún lét hann ekki á sér skilja, hvei-su unggæðislegur hann væri, og var hann þó yngri en eg. — Þvert á móti, mér virtist hún hlusta á hann með roða í kinnum og tindrandi augum. Mér varð litið á Carford og undraðist mjög, að sjá hann öldungis rólegan. Hann hlustaði á orð hertogans með undirgefnisbrosi og var að öðru leyti eins og honum væri dill- að. En eg átti bágt með að stilla mig um að fara til hennar og biðja hana að gæta sín í þessum hættulega leik, sem gat end-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.