Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Side 52

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1930, Side 52
44 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Davíð er Drottni kær, Davíð er faðir þinn. — Til Betlehem-hallar hópaðist fólkið að hylla þar konung sinn, því þegar hann var á Absalons aldri ort og spilað hann gat, þá glímdi ’ann við Golíat. Nú er hann gamall og grár, og gígja hans hrokkin og slök, boginn í herðum, í barndóm genginn og blindur í eigin sök. Hans stjórn er glapráð og leið fyrir landið, en — lýðurinn tæmir hans skál, því ungur hann söng fyrir Sál. — Þú kyst gatst hin hvítu brjóst, konungsins einkason, en kaust þó að hætta lífi og limum með lítilli sigur-von. Þú ætlaðir sjálfur að krýna þann konung, sem köppunum líkaði vel og æskunni’ í ísrael. II) eru brensku-brek. Iiví beiðst þú ei, Absalon, unz æskan var þrotin, áhuginn brotinn, og engin þín sigur-von? Hvox-t heldui'ðu’ að fjöldinn, sem framhjá gengur, fyrir þeim beygi kné, sem hanga á hæsta tré! Jólicunn Frímann. Bókmentir. Saga Snæbjamwr í Her- gilsey — ritnÖ af honurn sjálfum. Fyrra hefti. Ot- gefandi Þorst. M. Jónsson. Akureyi'i. 1930. Það er æfinlega ástæða til að fagna því, þegar eitthvað nýtt og þá um leið nýti- legt bætist við bókmentir vorar, eitthvað, sem að einhverju leyti auðgar þær og gerir þær fjölskrúðugri. Vel samdar æfisögur merkra manna, ritaðar af þeim sjálfum eða öðrum, eru ávalt skemtilegar og fróðlegar bækur. — Víða í heiminum eru slíkar bækur jafn- vel meira metnar bæði af alþýðu og fræðimönnum en t. d. skáldsögur, eins og þær gerast upp og ofan; og er það alloft alveg réttmætt. í vel samdri æfisögu — ekki sízt þeirri, sem rituð er af manninum sjálfum, geymist margskonar fróðleik- ur, athugun og reynsla, sem ti’auðla verð- ur betur skýrt frá á annan hátt, hún verður oft heimildarrit um lífshætti og kjör genginna kynslóða, um athafnalíf þeirra, hugsana- og tilfinningalíf, eða með öðrum orðum, sé um alþýðumann að ræða, eins og hér er, einskonar forðabúr fyrir þj óðminningafræðina. Saga Snæbjarnar í Hex-gilsey hefir alt þetta til að bei’a. — Það mætti e. t. v. setja það út á hana, að hún sé ekki nógu fast bygð, fylgi ekki nógu vel eftir því max'kmiði að skýi’a frá lífi Snæbjarnar sjálfs, svo að hún stundum virðist verða að möi’gum samsíða þáttum. En þegar alt er athugað, vex-ður það þó mikið vafa- mál, hvort þetta getur talist nokkur galli. Snæbjörn hefir auðsjáanlega ekki sett sér það takmai-k, fyrst og fremst a&

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.