Nýjar kvöldvökur - 01.01.1937, Síða 53
HITT OG ÞETTA
47
Hitt og þetta.
Nýja
framhaldssagan,
sem hefst í þessu hefti, er eftir hina góð-
kunnu norsku skáldkonu frú Margit Ravn.
Hafa tvœr hinar afar vinsælu skáldsagna
hennar komið út í íslenzkri þýðingu, og
hafa þegar hlotið afar miklar vinsældir
meðal yngri og eldri hér á landi. Það eru
sögurnar „Sunnevurnar þrjár“ og „Eins
og allar hinar“.
Þessi nýja saga, „Starfandi stúlkur", er
að sumu leyti all ólík hinum tveimur, en
sver sig þó greinilega í ættina. Þar er
hinn sami fríski og hressandi frásagnar-
blær, hin hlýja samúð með œskunni og
hinn djúpi skilningur á skoðunum hennar
og athöfnum.
Að þessu sinni hefir frú Ravn tékið
merkilegt og umdeilt þjóðfélagsmálefni til
meðferðar, og leysir sagan úr því á
skemmtilegan hátt, bæði fjölbreyttan og
að sumu leyti óvœntan. Gerir það söguna
hugðnœma og vekur sterka eftirvœntingu
lesandans.
Málefnið er í fám orðum, hvort starf-
andi stúlkur — „sjálfstætt fólk“ myndi
H. K. Laxness að líkindum kalla þær —
stúlkur, sem vinna fyrir sér sjálfar og
hafa fasta stöðu, eigi að sleppa starfi sínu,
er þær giftast, og gerast eingöngu hús-
rnæður — eða ekki. Um þetta atriði er
deilt í sögunni, og lífið sjálft látið skera
úr málum.-----
N.-Kv: efast eigi um, að lesendum muni
ieika forvitni á að fylgjast með frá upp-
hafi i sögu þessari og sjá hvemig rás við-
burðanna vindur fram með hverri blað-
síðu, en oft og tiðum á annan veg en les-
endur munu sjálfir œtla. Það er þetta sem
gerir sögu þessa „spennandi“, er fram í
sœkir. Það sem af sögunni birtist í þessu
hefti er aðeins inngangur hennar.
Fyndið svar.
Snæbjörn í Hergilsey er nú byrjaður 9.
áratuginn, en sjón hans er orðin lítil, en
hann er ern að öðru leyti, og ekki sízt
andlega, eins og eftirfylgjandi saga sýnir.
Nýlega var hann að þrátta við mann.
Allt í einu þagnar hann, og segir þá mað-
urinn: „Nú er þér svarafátt. En um hvað
ert þú annars að hugsa?“
Svarar Snæbjörn þá:
„Ég var að mæla milli þín
og manns á réttum dyggða vegi.
Það er eins og augu mín
eygja lengst á björtum degi.“
Maður, sem viðstaddur var sagði, að
það væri ekki svo langt nú orðið.
„Hann verður þó að vera á bak við sól-
ina, því að sólina sé ég enn“, svaraði Snæ-
björn.
----•»<---
Andorra
Á miðöldum voru ýmsir af hinum
mörgu dölum Pireneufjalla sjálfstæð smá-
ríki, en öll hafa þau fyrir löngu týnt
sjálfstæði sínu, nema eitt, ríkið Andorra,
sem liggur í austur Pireneafjöllum á tak-
mörkum Frakklands og Spánar. Segja
sögur að Karl mikli hafi stofnað ríki
þetta. Stærð þess er 452 km.2 eða eins og
1/220 hluti íslands. Að íbúatölu er það
minnsta ríki veraldarinnar (þegar páfa-
ríkið er ekki meðtalið), og er íbúafjöldi
þess um 6000. í gegnum stærsta dal lands-
ins rennur áin Eran Balina, sem er ein af
ám þeim, sem renna í stórfljótið Ebro.