Nýjar kvöldvökur - 01.01.1937, Síða 54
48
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
Mestur hluti landsins er notaður fyrir
beitiland, en á láglendinu og neðan til í
suðurhlíðum fjallanna er ræktað korn,
kartöflur, ávextir og tóbak. Landsbúar
hafa talsvert af nautgripum og sauðfé og
selja til Frakklands smjör, flesk, húðir og
ull. Þjóðbraut liggur í gegnum Baliradal-
inn, en annarstaðar eru vegirnir troðnar
hestagötur, líkt eins og víða á sér enn
stað á íslandi. íbúarnir eru sterkbyggðir
og myndarlegt fólk. Þeir eru rómversk-
kaþólskir og talar alþýðan katalonska
mállýzku, en ríkisfólk talar frönsku og
sendir börn sín í franska skóla. Landið er
lýðveldi og hefir 24 manna þing. Höfuð-
borgin heitir Andorra Vicilla og hefur
600 íbúa og er fámennasta höfuðborg ver-
aldarinnar. En þótt landið sé fólksfátt,
þá hefur það þó 600 manna her, og stjórna
honum tveir hershöfðingjar, annar út-
nefndur af Frakklandsstjórn og hinn af
biskupnum af Urgel á Spáni. Ekki má
nota herinn í útlenda þjónustu, heldur
aðeins til að halda uppi friði í landinu
sjálfu. Til Frakklands verður Andorra
að borga árlega 960 franka og til biskups-
ins af Urgel 460 franka. Mun þetta vera
nokkurskonar verndarskattur, en það sem
hefur aðallega verndað sjálfstæði lands-
ins er, að hvorki Frakkland eða Spánn
hafa unnað hinu landinu að taka það.
Til kaupenda.
Eins og oft áður gefa Nýjar Kvöldvökur
kaupendum sínum kost á, að fá nokkrar
góðar bœkur með mjög miklum afslætti.
GRÍMA l.—XI. h., sem er samtals
meira en 1100 síður og kostar öll með bók-
hlöðuverði kr. 23.00, geta kaupendur N,-
Kv. fengið fyrir kr. 17.00. Af einstökum
heftum fæst ekki afsláttur.
Þeir, sem vilja notfæra sér þetta tilboð,
verða að senda greiðslu með pöntunum,
Fyrir hálfvirði geta kaupendur fengið
eftirtaldar bœkur:
Útsöluverð kr. 7.00
4.00
5.00
4.00
3.00
8.00
3.50
5.00
og skal þeim þá þegar verða sendar þœr
bœkur, sem þeir panta.
Allar pantanir sendist undirrituðum út-
gefanda N.-Kv.
Tilboð þetta gildir til næstu áramóta.
Með kveðju og beztu árnaðaróskum.
Þorsteinn M. Jónsson.
Saga Snœbjarnar í Hergilsey.
Saga hins heilaga Frans frá Assisi, eftir sr. Friðrik Rafnar
Rousseau, eftir Einar Olgeirsson .....................
Mahatma Gandhi, eftir sr. Friðrik Rafnar.............
Himingeimurinn, eftir próf. Ágúst H. Bjarnason
Sagan af Bróður Ylfing, eftir Fr. Á. Brekkan ........
Nágrannar, eftir Fr. Á. Brekkan . . .................
Gunnhildur drottning og aðrar sögur, eftir Fr. Á. Brekkan
Ak. Prentsmiðja Odds Björnssonar. ’37.