Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 19
N. Kv, VITASTÍGURINN 107 jarðlífsrás yðar fáeinar mínútur? Ég málaði og nrálaði, en fannst aldrei að ég nálgaðist fyrirmynd meistarans. Mér lá oft og mörg- um sinnum við að gefast upp; en með því að beita öllu viljaþreki mínu — en þann eiginleika hefii- mig skort algerlega bæði fyrr og síðar, — þá lauk ég við stælinguna. Ég setti hana á sýningu, og vinir mínir sögðu, að stælingin væri betri en frummynd- in. Það var lýgi, bölvuð lýgi gegn hinum mikla Goya!“ „En það hlaut nú samt að vera gaman,“ sagði Adam. ,,Nei, vinur minn, það var sinán gegn hinum gamla meistara. Ég sá alvarleg augu hans hvíla á mér, og hann sagði: „Ungi maður, hví hreyfir þú við hjartablöðum mínum? livern rétt hefir þú til þess?“ Ég tók stælinguna út úr umgerð; sinni og brenndi henni!“ „En góði bezti, það var þó hreinasta fjar- stæða,“ sagði Adam ósjálfrátt. „Ég þurfti ekki að lifa á lýgi. Það kostaði mið finnn þúsund pesetas. Ég fylgdi kjör- orði mínu: Richesse oblige.“ Hann sveiflaði til hendinni, eins og væri hann að fleygja fimrn þúsund pesetas út um gluggann, og gekk burt til að skoða eplatré, þar sém greinarnar svignuðu undan aldinum sínum. „Þér getið bragðað á réttunum, ef yður Iystir,“ sagði Adam. Maðurinn hristi grein og hélt Iiattinum undir. Stórt, gullið epli féll niður í hattinn. „Gullpeningur í túrban Aladíns!" kallaði hanri fagnandi og fór að borða eplið. „En hvern ætlið þér að hitta á þessum slóðum? Ef til vill gæti ég lrjálpað yður,“ sagði Adam. „Ég lifi aðeins líðandi stund; bros yðar olli því, að ég gleymdi framtíðinni!“ í sama vetfangi kom Gottlieb hlaupandi ofan eftir trjágöngunum. Hann hafði heyrt, að hrist var í trjánum og hélt, að þar væru þjófar á ferð. Er hann kom auga á ferða- manninn. stóð hann augnablik sem steini lostinn, svo breiddi hann út risafaðm sinn og kallaði: „Sören gení!“ VI. Fía beið Adams með óþreyju. Frá því að þau komu til Straumeyjar, hafði aldrei bor- ið við, að hann væri heilan dag að heiman. Hún skildi ekkert í þessu. Það gat þó ekki verið langrar stundar verk að borga reikn- inginn hjá ívarsen? Börnin komu ldaup- andi í sífellu og spurðu: „Hvar er pabbi?“ Þau gátu ekki hugsað sér.annað, en að ann- að hvort væri hann í turninum að fága ljós- kerið, eða þá kæmi hann niður á klappirn- ar til þeirra og skannnaði þau, þegar þau væru að fl júgast á! Sérstaklega gat hinn litli og vígfúsi Roosevelt ekki skilið þetta. Hann var sem sé sá, sem oftast þurfti á hirtingu að halda. Nú var allt svo friðsamt, að hann samdi „vopnahlé" og varð friðarsinni. Hvað eftir annað hafði Fía farið upp í turninn og litast um með langa sjónaukanum. Niðri á bryggjunni hafði hún séð vinkonu sína, bakarafrú Sönniksen. Nú var hún eflaust að velja stærstu kolana úr hrúgunni og þjarka um verðið. Það var svo sem auðséð. En Adam sá hún hvergi. Sem allra snöggv- ast datt henni í hug, að hann hefði nú kann- ske lent í slarki, en hún sleppti því óðara. Það var alveg óhugsandi. Eina sennilega skýringin var sú, að hann kynni að hafa lent hjá stúdent Bramer, vini sínum. Og þá var ekki um annað að ræða en að taka á þolin- mæðinni. Hún lrafði beðið lengi með mið- degisverðinn, en síðan borið hann út aftur af borðinu. Klukkan var nú orðin fjögur. Fía þjáðist bæði af kvíða og forvitni. Samt hét hún sjálfri sér því, að þegar hann loks- ins kæmi aftur, skyldi hún vera ísköld og ekki spyrja hann um nokkurn skapaðan hlut. í vitavarðarhúsinu, sunnan undir vita- turninum voru tvær stórar stofur, og svefn- 14*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.