Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 27
N. Kv. VITASTÍGURINN 113 ungfrú Evensen. Er hún liérna? Ég hélt ég hefði séð hana áðan.“ Hún gekk inn að rúminu. „Komið þér hérna til mín, ungfrú. Þér eruð ágæt. Ég hefi alltaf verið — verið-“ honum varð orðfall. „Ánægður nreð yður,“ sagði hann luað- mæltur. Ungfrú Evensen hafði tekið hönd hans og hélt í hana. Fía dró sig gætilega í hlé. Hún hugsaði sem svo: Hana nú, nú kemur það! ívarsen strauk hönd ungfrú Evensen gætilega nokkrum sinnum og brosti til hennar, og hún brosti á nróti. Svo sagði hann allt í einu: „Æ, ég er svo þyrstur, ung- frú Evensen.“ Fía stóð innarlega í herberginu og brosti, þegar hún Ireyrði þetta og hugsaði með sér: Það verður víst ekki auðvelt að svala þeim þorsta. Ungfrú Evensen smeygði hand- leggnunr undir höfuðið á honum, studdi hann og rétti honum glasið. Svo strauk hún mjúkri lrendi yfir hár hans og enni. Hann drakk nreð góðri lyst og kinkaði kolli: „Þakka þér fyrir.“ Allt í einu spurði hann djúpum og styrkum rónri: „Hve nrikið kom í kassann r gær, ungfrú Evensen?" „Fjórtán hundruð og tuttugu krónur og átján aurar,“ svaraði hún viðstöðulaust. „Það var ekki mikið,“ sagði lrann; „jæja, það verður sennilega nreira á nrorgun, því að þá er laugardagur." Fía stóð nú frammi við dyr og hlustaði. Hún var mjög forvitin og hafði búist við lausnarorðinu þá og þegar. Og hún varð sárgröm, þegar lrún Iieyrði Ivarsen spyrja í hversdagslegum viðskiptatón unr fjárupp- hæðina. Henni virtist hann vera alveg dænralaus klaufabárður, sem alls ekki ætti skilið umlryggju konu, og enn síður blíðu- atlot. Þau hefði ungfrú Evensen sannarlega getað sparað sér. Fía ásetti sér nú að fara og náði í lratt sinn og kápu. í dyrunum kink- aði lrún kolli og sagði stuttaralega: „Góðan bata, ívarsen!" Hún gekk hratt upp Vitastíginn. Það var gremjulegt, að hún skyldi ekki hafa getað skákað ungfrú Evensen í trygga höfn hjóna- bandsins. Hún hafði búist við, að ívarsen hefð’i verið þjálli og auðveldari viðfangs núna, þegar hann var veikur og ósjálf- bjarga og þurfti bæði á hjúkrun og blíð- lyndi að halda. Karlmenn voru vanir að vera auðsveipir, er svo bar undir. En ívar- sem var blátt áfram ágirndarpúki og ekk- ert annað, það var ráðning gátunnar. En hún kenndi í brjósti um ungfrú Evensen. Hana langaði til að hjálpa henni, og þá minntist hún vélstjórans á „Sigurði kon- ungi,“ sem alltaf var vanur að segja, þegar eitthvað reyndist anddrægt: „Láttu þig aldrei!“ „Láta undan? Nei, nú var Fía í vígahug og hét sjálfri sér því, að ívarsen skyldi ekki þurfa að „deyja í synd sinni,“ það er að segja, ef honum batnaði. (Franrhald). --*> ------ Skrítla. Brandur var stundum settur sýslumaður í fjarveru sýslumanns, og gaf þá, nreðal ann- arra verka, saman hjónaefni. Eitt sinn hitti hann sóknarprestinn, sem var dálítið stríð- inn, og fór prestur að lrafa orð á að lítið nrark myndi vera að hjónavígslu Brands. „Hún er nú sanrt veglegri en vígslur sýslu- manns,“ kvað Brandur. „I hverju liggur það,“ spyr prestur. „Það er aðallega fólgið í upplrafinu og endinum," anzaði Brandur. „Ég segi, nú er hjónavígsluréttur settur, en sýslunraður segir bara, standið upp. Þegar öllu er lokið segi ég: Þá er athöfninni lokið, en sýslumaður segir: Nú skuluð þið fara — og hátta.“ 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.