Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 34

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 34
120 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. fullkomlega á við Donnu Dolores að feg- urð. Hún er stórauðug, og það ríður bagga- muninn, þegar allt kemur til alls. Eignir föður hennar í Sct. Patrico eru óhultar fyr- ir rauðskinnunum. Aldur Donnu Valen- tínu samsvarar einnig betur mínum aldri. f fáurn orðum sagt, þá kýs ég hana fremur en Donnu Dolores.“ Þeir félagar voru nú komnir í námunda við tjald Maranos. Hjá tjaldinu lágu tveir stórir veiðihundar, sem urruðu grimmilega þegar þeir nálguðust. í sama bili kom maður út í tjalddyrnar og hastaði á lmndana: „Ali og Grip, komið þið strax!“ Hundarnir gegndu ólundarlega. Maðurinn sem út kom var af æskuskeiði, hið drifhvíta hár bar þess gleggst vitni. En hann var þreklega vaxinn, þótt varla gæti hann talist nema tæplega meðalmaður á stærð. Maður þessi var enginn annar en Mor- timer Marano, gæzlumaður Placer Barr- anko. XXIV. RIFJUÐ UPP GÖMUL KYNNI Þegar Banderas sá gæzlumanninn brá honum illilega, því að hann sá að hann var enginn annar en morðinginn frá Alkalde- götunni. En hið æfintýralega líf, sem hann hafði lifað alla tíð, hafði gert hann kærulausan og fífldjarfan þegar f harðbakka sló. Banderas jafnaði sig því fljótlega, því að hann treysti á að Marano þekkti sig ekki aftur, sem reyndist rétt til getið. Marano kom á rnóti þeim, þungur á brún. „Hverjir eruð þið? Hvað viljið þið? Hvers vegna raskið þið næturró þessa þorps?“ 1 „Þér spyrjið margs í einu,“ svaraði Banderas kuldalega, „þó mun ég svara öll- um spurningum yðar, herra minn. Við er- um mezíkanskir borgarar, sem komum beint frá haciendu del Rodriquez. Eins og yður er ef til vill kunnugt, þá er haciendan rétt við landamærin og rétt hjá Colorado- fljótinu. Við eigum erindi við yður og af því að erindið var mjög brýnt, þá leyfðum við okkur að gera yður ónæði á svo óvenju- legum heimsóknartíma." „Fjandinn hafi öll ykkar erindi! Þau eru varla svo þýðingarmikil, að þau hefðu ekki þolað bið til morguns." „Ef þér teljið svo,“ svaraði Banderas kuldalega, „þá höldum við ferð okkar áfram. Okkur hafði að vísu verið sagt, að þér væruð vinur auðs og allsnnægta, og munduð fúslega hlusta á hvert það tilboð, er gæfi yður möguleika til þess að græða fé með léttu móti, en okkur virðist nú, að sú lýsing á yður hafi verið röng og höldum því áfram ferð okkar.“ Banderas gerði sig líklegan til að fara. „Hægan, hægan, maður minn,“ mælti þá Marano, „þér eruð óþarflega uppstökkur. Þegar svefnfriði mínum er spillt, þá hættir mér til að vera ekki mjúkur á manninn. Ég bið yður afsökunar. Gangið inn í tjald mitt og segið mér erindi yðar.“ Banderas og Gomez fylgdu gæzlumann- inurn inn í tjaldið. — Bauð hann þeim sæti á tveim óvönduðum trébekkjum, en sjálfur kastaði hann sér aftur á bak í rúmfleti, sem í tjaldinu var. „Þér vitið hver ég er?“ mælti hann við hershöfðingjann. „Þér eruð sá, sem ég leita að, Mortimer Marano." „Síðan hvenær þekkið þér mig?“ „Ég þekki yður aðeins af afspurn. Indíán- ar og- gullleitarmenn hafa sagt mér, að þér séuð sá maður, sem bezt sameini þessa þrjá höfuðkosti: takmarkalausa fégræðgi, hygg- indi og athafnasemi. En við slíkan mann á ég erindi."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.