Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 38
122 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. ganga mátti þurrum fótum, þar sem það hafði áður verið. En hvers vegna spyrjið þér að þessu?“ „Ég hefi mínar ástæður til þess að spyija,“ svaraði hershöfðinginn, „því mér hefir verið sagt, að vatnið í Gimsteinadaln- um sé horfið.“ „Hver segir það? Ljúgið ekki að mér!“ æpti Marano og þreif í axlirnar á Banderas. „Rólegir, rólegir, herra minn!“ mælti Banderas og sleit sig lausan. „Undrist ekki fyrr en ástæða er til, því nú skal ég segja yður það un dursaml egasta. “ „Segið það fljótt! Kveljið mig ekki! Er gullið fundið?" „Ég veit ekki hvað hæft er í þeim sögu- sögnum, er ganga meðal indíánanna um hina duldu fjársjóði. í Gimsteinadalnum. Það má vel vera að þær séu orðum auknar. En liitt veit ég með vissu, að nú er dalbotn- inn allur á þurru, og þar liggur lirágullið miljónavirði." Þegar Marano heyrði þetta, loguðu augu hans af dýrslegri áfergju. „Sögðuð þér að einhver félagi yðar hefði komið í dalinn?“ „Já,“ svaraði Banderas, „það sagði ég.“ „Og veit hann hvar á að ganga í dalinn?" „Það fullyrðir hann og ég hefi gildar ástæður til að trúa því.“ „Og hefir hann sagt yður hver leiðin er?“ „Nei,“ hló Banderas, „haldið þér að ég kæmi til yðar, ef ég vissi liver leiðin er?“ „Hvað viljið þér mér þá?“ æpti Marano gramur. „Ég vil neyða þennan mann til að segja allt af létta, en til þess þarfnast ég hjálpar yðar. Hann verður að segja okkur leyndar- málið og--------“ „Deyja svo,“ greip Marano fram í. j,Þér hafið skilið mig, heyri ég. Hann verður að deyja. En ég býst við, að okkur gangi illa að fá hann til að leysa frá skjóð- unni.“ „Hver er þessi maður? Hvar er hann?“ spurði Marano. „Hann er gullleitarmaður og er staddur hér í Placer del Barranko." „Hér! Hvað heitir hann?“ „Rólegir, herra minn! Fyrst verðið þér að heyra skilmála mína fyrir samvinnunni." „Búi hann hér,“ mælti Marano og stikaði frarn og aftur um tjaldið, „þá get ég full- vissað yður um, að okkur muni í félagi tak- ast að ve'iða upp úr honum leyndarmálið. Til livers haldið þér að ég sé gæzlumaður hér? Til að gæta laga og réttar? Nei — ónei!“ „Hverju getið þér áorkað í skjóli valds yðar og stöðu?" mælti Banderas. „Þér þekkið vissulega ekki völd mín hér. Þegar þjófnaðir og önnur spellvirki færð- ust svo í vöxt hér, að til vandræða horfði, þá fólu íbúar þessarar gullleitarnýlendu mér gæzlustarfið. Úr hópi gullfaranna valdi ég mér sex ófyrirleitna hjálparmenn, sem skyldu aðstoða mig við framkvæmd hinna óskráðu laga, sem hér eru í gildi. Stjóm okkar verður lengi í minnum höfð, við lét- um óspart kné fylgja kviði og gleymdum því aldrei að sjá okkar eigin hagsmunum borgið. Það megið þér vita með vissu. Eg treysti mér því fullkomlega til að liandtéra þennan náunga. Það eru margir glæpir, sem hægt er að ásaka náungann um, með góð- urn árangri, í henni veröld!“ „Og þola íbúarnir slíka harðstjóm og réttleysi?" „Vissulega! Þeir eru allir hræddir við okkur sjömenningana. Þeir vita að við lát- um ekki allt fyrir brjósti brenna. En segið mér skilmála yðar.“ „Eg skal vera stuttorður," mælti Bander- as. „Mínir skilmálar eru þeir, að við skipt- um bróðurlega á milli okkar fengnum, þeg- ar okkur hefir tekizt að ryðja úr vegi þeim manninum, er hér veit einn hvar leiðin í Gimsteinadalinn er.“ „Eg geng að því,“ mælti Marano og þó

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.