Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 44

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 44
128 ALÞÝÐUMENNINGIN OG BÓKMENNTIRNAR N. Kv. vert að hafa verzlunarviðskipti við íslend- inga, sökum þess, hve lítt mætti treysta þeim. Eg geri ráð fyrir, að bankarnir og málfærslumennirnir gætu eitthvað um það sagt, hvort þetta hafi verið alveg út í blá- inn mælt. Enn betur munu lesendur minn- ast greinar Sveins Björnssonar í Dvöl 1938 um „Að svara bréfum“. Og ekki er mín góð- menska meiri en svo, að þau árin, sem ég dvaldi erlendis, kom það nokkuð oft fyrir, að mig langaði til að „gefa duglega á kjaft“, þegar landar mínir gumuðu sem ósmekk- legast um þetta einstæða ágæti íslendinga og þeirra fornafdarfrægð — gleymandi því, að „það gefur ei dvergnum gildi manns að Golíat var afi hans.“ Nei, það er betra að láta aðra um það, að mikla okkur, og það er sannast að segja líka bezt, að þeir geri það í hófi. Og helzt ættum við að geta séð þegar lofið er hreint háð. Það hefir okkur þó ekki alltaf tekizt, og mætti tilfæra ýms dæmi. Eg ætla að nefna aðeins eitt. Við stöndum, eins og kunnugt er, mjög aftarlega í garðrækt, svo aftarlega, að langt er frá að vanvirðu- laust rnegi heita. En Bretar eru önnur mesta garðræktarþjóð í Norðurálfu, svo að Hol- lendingar einir standa þeim framar. í fyrra kom hingað enskur blaðasnápur. (Þessi gerpi, allra þjóða kvikindi, eru sífellt að koma hingað með fáfræði sína, til þess að búa sig undir að skrifa á síðan bull um okk- ur handa löndum sínurn, og þegar slíka höfðingja ber að garði, tökumst við alveg á loft). Aftur heimkomið skrifaði manntötrið — „að sjálfsögðu logandi hól.“ Ein greina hans var að sögn um það, hvílík furðuleg garðyrkjuþjóð íslendingar væru. Dagblað eitt í Reykjavík var svo barnalega saklaust, að það tók þetta fyrir góða vöru og sagði frá hólinu undir nokkurra dálka fyrirsögn. En þess varð ég var, að þá gekk barnaskap- urinn fram af fleirum en mér. Hingað til má heita að það sé aðeins eitt, sem varpað hefir ljóma á nafn íslands úti um heim: bókmenntirnar. En af þeim ljóma líka bjarmar heimskautanna á milli. Þannig er það, að ein hin allra bezta blaðagrein, sem ég hefi séð um ísland á erlendu máli, birtist í því landi, sem fyrir legu sína er ein- angraðast allra byggðra landa á hnettinum og okkur fjarlægast, þ. e. Nýja Sjálandi. Enda þótt hún væri um ísland nútímans, þá var þó tilefni hennar það, að þetta land átti hinar einstæðu miðalda-bókmenntir. Það er af þeim og Hallgrími Péturssyni að þannig hefi rlýst fram áþennandag. Eneitt- hvað er líkfararlegt við það, að lifa á ein- tómri fornaldarfrægð, og ekki getur það samrýmzt heilbrigðum og þróttugum þjóð- armetnaði. Það er alltof líkt því, er farið er að skrifa menn „fyrrverandi“ heiðursmenn, sem ætíð virðist gefa til kynna, að nú sé~ lítið úr þeim orðið. Samtíðin getur illa un- að því, og framtíðin með engu móti. Hún vill annað og miklu meira; en hvað hún vill, það hefir mér vitanlega enginn sagt af annarri eins snilli og Björg Pétursdóttir í kvæði sínu, Þetta vill framtíðin. Það kvæði er of langt til þess að taka það upp hér, og styttingu þolir það ekki, því að það er laust við ónytjuorð og útúrdúra. Eg verð því að vísa til þess í Þingeyskum ljóðum. Ekki er unnt að sjá, að íslenzk þjóð muni nokkru sinni geta unnið sér virðingu heims- ins fyrir annað en andlega og siðferðilega atgjörvi. Virðingu heimsins hlýtur í raun- ,inni engin þjóð, sem ekki á andlega afreks- menn. Eigi hún þá ekki, getur hún aldrei hlotið varanlega frægð. Það er bjarminn af þeirra afrekum, sem lýsa verður upp hin önnur, ef þau eiga ekki að hverfa f gleymskuhafið. Laugaklif væri löngu gleymt ef það hefðu ekki verið Grikkir, sem vörðust þar. Meira að segja myndi Leonidas nú vera dauf minning, ef Simoni- des hefði aldrei verið til. Um andleg afrek íslendinga — alinna og óborinna — á ýmsum sviðum getum við lát- ið okkur dreyma, og ber enda að láta okkur dreyma, að því tilskyldu að við höfum þann:

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.