Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 49

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 49
N. Kv. ALÞÝÐUMENNINGIN OG BÓKMENNTIRNAR 131 nokkuð brysti á að þetta væri gert, en nú bendir ýmislegt. til þess, að aftur sæki í rétt horf. Sú hreyfing, sem komizt hefir á um ritun héraðssagna, og hófst í Skaftafells- sýslu, mun væntanlega örva heilbrigðan metnað í þessu efni, og fyrir allra hluta sak- ir er hún svo merkileg og lofsverð, að sjálf- sagt er að hlúa að henni á allan hátt. Það er vitaskuld skáldskapurinn, sem fyrst og fremst kemur til greina. Við höfum talið hann óðal okkar, og í fágun og festu Ijóða- formsins hafa íslendingar komizt svo langt, að það er öðrum þjóðum varla öfundlaust. Þá eigum við og svo svipnrikið og mynd- auðugt skáldamál að í höndum þeirra skálda, sem nreð það kunna að fara, ber það langsemrilegast af því, sem nokkur þjóð á önnur. Eívort tveggja virðist nú vera í nokkurri hættu. Hinir dýru og fáguðu hætt- ir eru erfiðir þeinr, sem litla hagmælsku hafa, og þegar það fer að leyfast átölulaust, að leita undan hrekkunni á þessari götu, þá verður það ýnrsum freisting að gera svo. í þeim efnum er jafnvel svo langt komið að þeir, sem bágt eiga með að ríma, yrkja „kvæði í óbundnu máli.“ Þá list kunni hvorki Jónas né Matthías,' og sunrir lrafa ætlað, að það væri eitt af því, senr ekki einu sinni guð almáttugur rnegnaði að gera. Unr málið er jrað að segja, að nú getur það líka borið við, að skáld fái beinlínis hrós fyrir að hafa klætt hugsanir sínar í „duggara- peysu daglegs máls,“ eins og Guðmundur Finhogason orðaði það. Ekki óraði Egil fyrir þessu, þegar hann „bar út ór orðhofi mærðar timbr máli laufgat,“ og fráleitt heldur Hallgrím, þegar hann orti Aldar- hátt. Það er atlryglisvert, að þetta undanhald kemur ekki frá alþýðuskáldunum, heldur einmitt hinum, sem eitthvað eru skóla- gengnir. Og það má mikið vera, ef ]rað verða ekki einmitt alþýðuskáldin, sem stöðva flóttann — ef hann verður stöðvaður. Vonandi þarf ekki að slá varnagla við því, að alþýðuskáld og smáskáld sé látið merkja hið sama. Það væri hin mesta fjar- stæða. Þannig voru tvö hin ágætustu höfuð- skáld nítjándu aldarinnar, Bólu-Hjálmar og Sigurður Breiðfjörð, óskólagengnir menn, sem alla ævi lifðu við hin fátækleg- ustu kjör. Og svo að tekið sé dæmi úr sam- tíðinni, þá er Guðmundur Friðjónsson út- kjálkabóndi og hefir þá eina skólamenntun lilotið, sem nú er talin sjálfsögð hverjum unglingi. Samt mundu fáir neita því, að hann sé eitt að rnestu liöfuðskáldum sinnar tíðar; svo stóran sjáum við hann. Þó mun- um við, senr lifað höfum honum samtíða, allt frá því er hann fyrst stóð frammi fyrir þjóð sinni, aldrei sjá hann í fullri stærð. Sú sýn er öðrum geymd. Stephan G. Stephans- son var einnig bóndi og kom aldrei inn fyr- ir skóladyr. Nú er risamynd hans að hefja sig svo að hún gnæfir við „himin sjálfan." Og ekki er það duggarapeysumálið, sem hann vakli sínum ljóðum, heldur gnestur þar í stálinu. Aldrei hefir heldur Jón Magn- ússon haft af skólagöngu að segja og þarf þó ekki orðum um það að eyða, hvílíkri vitsmunakyngi mörg af ljóðurn hans eru mögnuð. Söguljóð þessa almúgamanns, Björn á Reyðarfelli, eru vitnalega einstætt leiðarmerki í nýjustu bókmenntum okkar. — Nei, lærdómur er góður og æskilegur, en ekki er það hann, sem gerir menn að skáld- um. Ég er hér að tala um þá samtíð, sem er að fæða af sér framtíðina. Athyglisverðasta hendingin um það hjálpræði, sem ástæða er til að vænta bókmenntunum af alþýðunni, er ljóðasafn það eftir fimmtíu þingeysk skáld, sem gefið var út á Húsavík fyrir tveim árum. Því vel ég það sérstaklega til vitnis, enda er sú aðferðin handhægari en að smala út um hvippinn og hvappinn. All- ir eiga höfundarnir heima í einu héraði, ekki fjölmennu, og þótt þeir séu þetta margir, ber öllum sögnum saman um það, 17*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.