Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 57

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 57
N. Kv. BÓKMENNTIR 137 hér er merkileg bók um einn af merkustu mönnum samtíðar vorrar, og á hún því skil- ið mikla útbreiðslu, enda væri þá einkenni- lega farið lestrarsmekk almennings, ef hann ekki kynni að meta, þegar slíkar bækur koma á markaðinn. Frágangur bókarinnar er allur hinn prýðilegasti, og er hún prýdd nokkrum myndum. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Stígandi, I. ár, 1. h. Ritstjóri: Bragi Sigurjónsson. Afgreiðslumaður: Jón Sigurgeirsson. Nýlega hefir tímarit þetta hafið göngu sína hér á Akureyri. í ávarpi til lesendanna komast útgefendur svo að orði: „En hug- mynd vor, sem að þessu riti stöndum, er sú, að hér eigiNorðlendingargreiðanaðgangað vettvangi að ræða mál þau, sem efst eru á baugi með þjóð vorri og merk mega teljast., enda sé rökvisst, stillt og kreddulaust á mál- um haldið. Enganveginn er þó hugmynd vor, að hér verði um fastskorðað fjórðungs- rit að ræða, og engan fjórðungsríg er því ætlað að reisa. Þær greinar, sem vér höfum hugsað oss að láta rit þetta mest fjalla um, eru bókmenntir og tunga þjóðarinnar, at- vinnulíf og atvinnuhættir fyrr og nú, ferða- lýsingar og landshættir og fræðslumál. Einnig er tilætlunin að flytja ýmiss konar fróðleik eftir föngum og nokkuð af þýddu éfni.“ í þessu hefti er meðal annars: Á krossgöt- um — eða villigötum? eftir ritstjórann; Um málvöndun eftir Halldór Halldórsson; Frú- in á Grund eftir Kristínu Sigfúsdóttur; Bjarni stórhríð, smásaga eftir Þráinn o. fl. Stígandi fer vel af stað og óska N. Kv. honum góðs gengis; annars þarf mikið til þess, að hleypa nýju tímariti af stokkunum nú og láta það lifa, því að við svo mörg eldri tímarit er að keppa. Þ. M. J. Sverrir Krístjánsson: Siðaskipta- menn og trúarbragðastyrjaldir. — Bókaútgáfan Reykholt h/f Rvík 1942. Bók þessi er erindaflokkur, sem höfund- urinn flutti í útvarpinu. Er efni hennar því kunnugt þeim, sem á erindin hafa hlustað. Er bókin „lífssögur þeirra manna, sem hæst bar á siðaskiptaöldinni, mörkuðu dýpstu sporin í samtíð sína, og lifa enn, ekki aðeins í minningum sögunnar, heldur einnig í áþreifanlegum merkjum hins sögulega veruleika vorra daga,“ eins og höfundurinn kemst að orði í forspjalli bókarinnar. Fyrir alla þá, sem fræðast vilja um hin merkilegu umbrotatímamót miðalda og nýju aldar er bók þessi mikill fengur. Hún er skemmti- leg aflestrar, vel útgefin og prýdd myndum allra söguhetjanna. Þ. M. J. Jörð, IV. árg., 3. h. Ritstjóri: Bjöm O. Björnsson. jörð er vel læsileg sem fyrr. Efni hennar í þetta skipti er: Stjórnarskrárfrumvarp eft- ir ritstjörann, Ábyrgðarkennd og sómatil- finning eftir Guðmund Friðjónsson, ísfirzk blaðamennska eftir Kristján Jónsson á Garðsstöðum, Ameríska hugsjónin eftir Valdimar Björnsson, ritdómar um bæk- ur o. fl. Þ. M. J. Ársrit Skógræktarfélags íslands 1943. Reykjavík 1943. Ársrit Skógræktarfélagsins er að þessu sinni allmikil bók og flytur það að vanda merkar ritgerðir um skógræktarmálið. Aðalritgerðin, og um fullur þriðjungur heftisins er um ræktun erlendra trjáteg- unda eftir Hákon Bjarnason skógræktar- stjóra. Ræðir hann þar um flutning trjáa almennt, og gerir síðan grein fyrir veður- fari í norðurhéruðum Noregs og Alaska, en á þessum stöðum er loftslag og veðurfar 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.