Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Page 17
N. Kv. HUGLEIÐINGAR ÓLAFS Á HAMRABORGUM 3 Þú reynir að nálgast og þú reynir að skynja þennan stóra geisla, volduga göfga geisla, sem er á bak við allt. Þú hlýtur að trúa því, þú verður að trúa því, að þessi geisli sé til, að guð er til, að eilífðin er staðreynd. Nú biður þú þennan guð ljóss og lífs að blessa allt líf og allt starf, að líkna öllu, sem lifir og brærist. Þú biður þess, að vilji bans megi verða svo á jörðu sem á himni, og þú biður hann sérstaklega að blessa og líkna náunga þínum, þessum, sem olli þér sárs- auka í gær eða í morgun. Þú vefur hann eða þá í albeztu hugsanir og björtustu geisla, sem andi þinn og hugsun nær tökum á, og allt mun verða auðveldara en áður, og kraftaverk munu bráðum gjörast. Þetta kalla skynsamir menn sjálfsrækt, þetta kalla þeir að þjálfa sig í góðvild, þetta kalla þeir að leita guðsríkis innra með sjálfum sér. Þessi fornu ummæli: guðsríki er innra með yður, leitið fyrst guðsríkis og hans réttlætis, biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður og rógbera, er ekki einungis fegursti og djarfasti boðskap- ur, heldur einnig dýpsta sannreynd mann- legs lífs. Ef við trúum ekki á ódauðleika sálarinnar, eilíft líf,ríki guðs á jörðu og himni, — þá höfum við dæmt okkur úr leik, við höfum dæmt okkur út af bjartasta leikvangi mannlegrar tilveru, og þá erum við orðin byrði á örmum annarra, sem leit- ast við að lyfta okkur upp á veginn, bera okkur á bænarörmum til blómanna í birtu og yl. Allir muna orð Krists um gleðina á himnum, þegar einn blindur fær sýn og bætir ráð sitt. Auðvitað erum við öll illa sjáandi, en mismunandi þó. Þegar við í einverunni leitum guðs, biðjum fyrir þeim og blessum þá, sem valda okkur óþægind- um og sársauka, erum við að gefa örlög- íim okkar og annarra skarpari sjón, hærri og heiðari sýn. Það er karlmennska að leita liáfjal'anna í heimi andans, en ekki kveif- arskapur, samanber orð skáldsins: „Að þræða sinn einstig á alfarabraut, að eilífu er listanna göfuga þraut.“ Þrautin er göf- ug, þegar hún er fólgin í viðleitni til þess að stækka sjálfan sig og aðra. Vel má vera, sð þú finnir ekkert sérstakt eða óvenjulegt fyrsta kvöldið eða fyrstu kvöldin, en ef þú beldur rólegur eða sannfærður áfram og íylgir reglunni nákvæmlega, muntu áður en varir verða snortinn af nýjum andblæ, geislaregni æðra lífs, sem þú hefur aldrei fundið áður. Þessi geisladögg hverfur að vísu út í fjarskann með nýjum degi, þegar önn dagsins kallar á þig, eins og nætur- döggin, sem gufar upp af blómknöppun- um í sólskini morgunsins, en gaf þeim þó áður endurnæringu, þroskaskilyrði um svala nótt. Þú finnur ólíkamlegan, órök- rænan lífblæ, fyrir utan og ofan þennan líkamlega, jarðneska skynheim. Eitthvert, x, sem þú finnur, að er meira og stærra en þú sjálfur, orkuöldur, sem hrærast, rísa og hníga, einmitt þetta, sem þú hefur verið að leita að alla ævina, þetta, sem þú þráir að finna, þarfnast að finna og elska. Þú hefur öðlazt andlega reynslu, sem þú getur þó ckki rökstutt að neinu ráði, því við vitum svo miklu minna um eðli þessa afls, en Iivernig það verkar og hvaða árangur það hefur, eins og David Dietz orðaði það í sambandi við hinn dulda hátt efnisins •— aðdráttarafl efniseindanna, og ég vék að í fyrra þætti greinarinnar. Aðalatriðið er, að þetta er staðreynd. Þegar góðvild þín til samferðamannanna rís hæst, lífsvitund þín stígur svo hátt, að hún verður að guðsvitund, sem vel getur átt sér stað við beztu skilyrði, er öldutíðni efniseindanna í andrúmsloftinu í herberg- inu þínu, í umhverfinu, sem lykur um veru

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.