Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Síða 26
12
ALASKAFÖR JÓNS ÓLAFSSONAR
N. Kv.
Alaska-Eskimói•
vistarveru í virkisrustuntim, því að þar var
eldavélarskrifli, sem þeir gátu lcveikt eld í.
Vistir höfðu þeir með sér frá skipinu. Fóru
þeir svo brátt út í skipið til að fá sér mat
og fleira.
Reyndu þeir að kanna landið og gengu
þar um. Voru þar mýrar, sem þeir töldu,
að vel mætti skera fram og þurrka. Gras var
sölnað, en ákaflega hátt, í mitti og undir
hendur. Veðrið var afleitt, stundum hríðar-
jagandi og stundum rigning eða slydda.
Bátnum hvolfdi hjá þeim, og fór þá vélin úr
bonum, svo að hann varð þeim að engu liði
framar. Fóru þeir svo út í skip á mánudag,
en höfðu komið á fimmtudegi. Þrátt fyrir
allt leizt þeim vel á landið, en héldu, að
hetra væri þó fyrir íslendinga að byrja ann-
ars staðar, því að fiskur gekk ekki í Cooks-
fjörð. Aftur á móti var laxveiði sögð mikil
í ánni, og það svo, að ausa mátti upp með
höndum, en nú var sú veiði búin á þessu
sumri.
Nú var haldið til Kodiakeyjar, því að
þangað var Islendingurn ætlað að fara
fyrst, og voru þeir nokkra daga á leiðinni,
en þangað komu þeir laugardag 24. októ-
Ler. Þar var tekið á móti þeirn af toll-
heimtumanni stjórnarinnar, og þar var eitt-
hvað af húsum. Fengu þeir tómt hús, sem
hægt var að hita upp. Fóru þeir svo dálítið
um eyjuna, en þó minna en til var stofnað
vegna dýraboga. Auk þess var veðrið nú
urðið svo erfitt, að þeir urðu hvað eftir ann-
að að halda kyrru fyrir innan dyra. _Þarna
voru þeir um viku tíma, og leizt þeim mjög
vel á eyjuna handa frumbýlingum, því að
þar virtist bæði gott til grasræktar og ýmiss
konar garðávaxta, en auk þess mátti þar
veiða fisk uppi í landsteinum. Þeir veiddu
þar t. d. þorsk við litla bryggju, eins og þeir
þurftu til matar. Þeir fengu einnig bát frá
skipinu með sig til eyja, sem lágu þar úti
fyrir, og leizt þeirn þar vel á landkosti.
En nú var skipið að halda heimleiðis.