Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Qupperneq 36

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Qupperneq 36
22 HÚN ÞAGÐI YFIR ÞVÍ N. kv. að eftir lienni, og herbergisþernan var ein- staklega lagleg. Jajæja, allir voru henni rnjög góðir. Þegar öllu var á botninn hvolft, voru Frakkar ákaflega viðkunnanlegir, og hún hafði ekki séð neitt — alls ekki neitt, sem ekki var fallegt eða sómasamlegt. Hún hafði nógar fréttir að skrifa prófastinum að morgni. Henni hitnaði allri við að nudda sig með handklæðinu. Hún fór aftur í náttfötin og sveipaði að sér þykkum ullarsloppnum, lagaði til í baðherberginu alveg eins og hún var vön að gera heima hjá sér, greip svamp- inn og handklæðið, slökkti ljósið og læddist eftir göngunum til herbergis síns. Þegar hún kom inn fyrir, kveikti hún og lokaði Lurðinni í skyndi. En þá kom nokkuð skrýt- ið fyrir — rétt eins og alltaf má búast við í útlendum gistihúsum. Hún hélt eftir á hurðarhandfanginu! Henni varð að orði: „Hvaða ólán“, og svo reyndi hún að koma því á sinn stað aft- ur með annarri hendi, en í hinni hélt hún á svampinum og handklæðinu. En þar fórst henni óskynsamlega, því að með því að þrýsta húninum ógætilega á stálteininn — an þess að grípa um hann, — þá ýttist teinninn lengra inn í hurðina, og húnninn náði ekki taki á honum. Henni varð aftur á að segja: „Hvaða ólán“ og lagði svamp- inn og handklæðið á gólfið, reyndi að góma teininn með vinstri hendi, en hann hafði ýtzt of langt inn. „Hvað ég get verið heimsk!“ hugsaði hún. „Ég verð að hringja á þernuna — og ef til vill er aumingja stúlkan háttuð.“ Hún sneri sér við, leit um herbergið og varð gagntekin af skelfingu. I rúminu lá ítofandi karlmaður. Aldrei á ævi sinni hafði hún orðið eins ofsahrædd og þegar hún sá þetta þeldökka andlit, svarta, úfna hár og þykka yfirvaraskegg á koddanum. Hjarta hennar nálega stöðvaðist. í nokkrar sekúnd- ur gat hún hvorki hugsað né æpt, og fyrsta hugsun hennar var: „Ég má ekki æpa.“ Þarna stóð hún sem lömuð væri og starði á höfuð mannsins og íboginn kúfinn af lík- ama hans undir sængurfötunum, en þegar hún fór að jafna sig, ruddust hugsanirnar fram. Fyrst sá hún í hendi sér, að maðurinn átti enga sök á þessu; liennar var sökin. Hún hafði rekizt inn í rangt herbergi. Þetta var herbergi mannsins. Herbergin sjálf voru alveg eins, en þarna var allt dótið hans, föt- in hans á stólnum, hálslínið og bindið á skápnum, stór og þung stígvél og einkenni- legt, gult ferðakoffort á gólfinu. Ut varð hún að komast — einhvern veginn. Hún greip aftur til hurðarinnar og rak neglurnar inn í gatið, sem teinninn hafði skroppið inn í; þá reyndi hún enn að þrýsta fingrunum í rifuna mili stafs og hurðar og opna á þann hátt, en allt varð það til einskis. Hún var algerlega lokuð inni í svefnherbergi alein í ókunnu gistihúsi með karlmanni .... útlendingi .... Frakka! Nú varð hún að hugsa sig um. Hún slökkti ljósið, því að ef dimmt var, gat verið, að hann vaknaði ekki. Þá gafst henni tími til að hugsa um, hvað hún ætti til bragðs að taka. Furðulegt var, að hann skyldi ekki hafa vaknað. Hvað mundi hann gera, ef liann vaknaði? Hvernig gat hún gert grein fyrir sér? Hann mundi ekki trúa henni, og enginn mundi trúa henni. í ensku gistihúsi mundi það vera torvelt, en hér, þar sem hún var bráðókunnug meðal eintómra útlend- inga, sem hlutu að gruna hana um græsku .... Drottinn minn góður!“ Út varð hún að komast. Átti hún að vekja manninn? Það þorði hún ekki. Hann gat sálgað henni. Hann gat .... Ó, það var hræðilegt til þess að hugsa! Átti hún að æpa eða hringja á þernuna? Nei, það kæmi út
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.