Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Page 39
Þegar Gigli gegndi herþjónustu í Róm,
kynntist hann konu sinni Costönzu. Hann seg-
ir svo:
„Eg hafði mér til afþreyingar í íómstund-
um mínum að labba fram og aftur á Via Pa-
dolina. Gat þá ekki hjá því farið, að ég tæki
eftir ljóshærðri stúlku, sem gekk oft ofan göt-
una í sama mund og ég. Mig fór að langa til
að vita, hver hún var. Þannig liðu nokkrar
vikur, og við fórum að bjóða hvort öðru gott
kvöld.
Hún kvaðst heita Costanza Cerroni og vera
dóttir fornsala- Ég hafði ekki gleymt Idu, en
hún hafði sært mikillæti mitt. Costanza barg
mér úr einstæðingsskap mínum, og nokkru
eftir að við töluðumst við í fyrsta skipti, bað
ég hana að giftast mér.“
Þessi hægláta og móðurlega kona varð
förunautur Giglis í 42 ár. Er hún gat ekki
fylgt honum á ferðalögum hans, sendi hún
honum stundum uppáhaldsmat lians í hrað-
pósti.
„Viljir þú verða góður söngvari,
verður þú umfram allt að vera góð-
ur maður."
Með þessum orðum kvaddi móðir Giglis
hann, er hann hélt að heiman út á hina tor-
sóttu braut listarinnar.
Beniamino Gigli hélt síðustu hljómleika
sína í Washington 25. maí 1955. Eftir það hélt
hann heim til fæðingarborgar sinnar Recanati
og settist þar að í höll, sem hann átti þar. I
ró og kyrrð sveitalífsins tók hann að rita end-
urminningar sínar með aðstoð dóttur sinnar,
Rinu. Bókin kom út á sl. ári og vakti óðara
alheimsathygli. — Útgáfufyrirtæki um allan
heim kepptust um að fá útgáfuréttinn.
Kvödvökuútgáfunni h.f. er það ánægjuefni að'
geta tilkynnt kaupendum Nýrra kvöldvakna, að
þeir geta fengið bókina beint frá útgáfunni
með 30% afslætti frá útsöluverði, sem er kr.
135.00 eða á kr. 95.00, auk póstkostnaðar.