Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Síða 40

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Síða 40
26 HÚN ÞAGÐI YFIR ÞVÍ N. kv. Framli. af bls. 23. niður. Hefði nú þetta aðeins ekki viljað til utanlands! Hún reyndi að setja saman setn- ingar á frönsku sér til afsökunar, en fransk- an brást henni. Það talaði líka svo hratt, þetta fólk, og hlustaði ekki á aðra. Aðstaða hennar var óþolandi, og mundi hún geta þraukað hana af til morguns? Þá sem stóð fór ekki mjög illa um hana, en loftþungt var þarna, og hún var óskap- lega hrædd. Þarna átti hún að dúsa í sjö eða átta klukkustundir og ef til vildi að íinnast að lokum. Mínúturnar liðu, hún velti málinu fyrir sér, en hún komst ekki að neinni niðurstöðu. Hún fór að óska þess, að hún hefði æpt eða vakið manninn, því að það mundi hafa verið skynsamlegast og vænlegast; en hún hafði látið tíu eða fimm- tán mínútur líða frá því er þernan vissi, að hún hefði farið úr baðherberginu. Menn mundu krefjast skýringar á því, hvað hún hefði aðhafzt allan þann tíma. Hvers vegna hafði hún ekki æpt fyrr? Hún lyfti kögrinu eilítið og hlustaði, þóttist heyra andardrátt mannsins, en hún var ekki viss um það.Hún stakk andlitinu út tmdan kögrinu, og þá varð loftbetra, svo að hún náði vel andanum; taugarnar sefuðust nokkuð við það, og hún gat farið að hugsa skipulegar. Fram úr vandræðunum varð að ráða, og verið gat, að allt færi það vel á endanum. „Auðvitað má ég ekki sofna,“ hugsaði hún, „enda get ég það varla, og þó er bezt að hafa allan varann á.“ Hún beit á jaxlinn, setti í sig hörku og varð nokkuð hughægra. Henni varð næstum því að brosa, þegar hún hugsaði til þess, að nú hefði lnin nóg fréttaefni til að skrifa prófastinum morguninn eftir. Hvernig mundi honum verða við? Auðvitað mundi hann trúa því; hann hafði aldrei efazt um neitt, sem hún hafði sagt honum um ævina, en sagan mundi verða svo .... fjarri öllum sanni. I Easingstone var nálega ókleift að þola umtal um aðra eins raun — að hún, Millicent Bracegirdle, hefði legið nætur- langt undir rúmi ókunnugs manns í útlendu gistihúsi! Hvað mundi kvenfólkið hugsa, t. d. hún Fanney Shields eða sögusmettan hún frú Rusbridger gamla? Ef til vill .... já, ef til vill var hyggilegra að biðja bróð- ur hennar, prófastinn, að láta ekki söguna berast út; það mátti svo sem fastlega búast við, að frú Rusbridger bæði rangfærði og ýkti hana. Og elskurnar heima — hvernig ætli þeim liði? Allir hlutu að vera sofnaðir í Easing- stone. Bróðir hennar gekk alltaf til náða á ellefta tímanum. Hann svaf vafalaust vært og rólega svefni réttlátra .... andaði að sér hreinu og heilnæmu loftinu í Sussex — ekki þessu hérna, sem var svo þungt! Hún þurfti umfram allt að hósta, en mátti það ekki. — Já, klukkan hálf níu kom allt heimafólkið saman í bókaherberginu, og þar var stutt bænahald, aldrei lengur en fimmtán mínútur — bróðir hennar hafði ekki mætur á margbrotnum helgisiðum, svo var drukkið kakó klukkan tíu, og upp úr því fóru allir að hátta. Og svo indæla svefn- herbergið hennar með mjóa, hvíta rúminu, þar sem hún hafði kropið niður á hverju kvöldi, síðan hún mundi eftir sér, og lesið kvöldbænirnar sínar .... Bænirnar! Já, undarlegt var þetta. Það var fyrsta kvöldið, sem hún hafði ekki lesið þær, áður en hún gekk til hvílu. Að vísu stóð einkennilega á fyrir henni, svo að ein- dæmi mátti kallast. Drottinn hlaut að skilja það og fyrirgefa henni þá yfirsjón, en samt .... hafði hún nokkra ástæðu til að van- rækja kvöldbænirnar sínar? Auðvitað gat hún ekki kropið á kné í réttar bænastelling-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.