Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Side 43

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Side 43
N. kv. HÚN ÞAGÐI YFIR ÞVÍ 29 að einhver dræpi á dyrnar og reyndi að komast inn, en skóhljóðið barst fram göngin og hvarf. Þetta var þó nóg til þess, að hún fór aftur að hyggja á undankomu; ekki mátti standa við svo búið; út varð hún að komast, hvað sem það kostaði. Að finnast inni í herbergi ókunnugs manns um hánótt — það var afleitt, en að finnast inni í herbergi dauðs manns var ennþá verra. Verið gat, að hún yrði sökuð um morð. Já, ekkert var líklegra, og hvern- ig gat hún afsakað sig fyrir þessum útlend- ingum? Guð minn góður,þeir mundu hengja hana! Nei — afhöfða hana, eins og þeir gera í Frakklandi; þeir mundu höggva af henni höfuðið með stórri fallöxi úr stáli. Guð á himnum! Hún setti sér sjálfa sig fyr- ir hugskotssjónir standandi með bundið íyrir augu hjá presti og böðli með rauða hettu, eins og manninn í sögunni hans Dickens — hvað hét hann nú aftur? .... Sydney Cartin hét hann, og áður en hann steig upp á aftökupallinn, mælti hann: „Mér líður langtum betur en mér hefur nokkurn tíma liðið áður.“ Nei, hún mundi ekki geta tekið undir þau orð; henni mundi líða langtum verr. Hvað var um bróður hennar, prófastinn, að segja — mágkonu hennar, sem var að koma ein síns liðs frá Paraguay á morgun — allt fólkið og vinina í Easingstoke — og hann Tony, stóra, bröndótta uppáhaldsköttinn hennar? Henni bar skylda til að gera allt sitt til að komast hjá afhöfðun. Hún gat engu um breytt í herberginu og ekki lífgað dauða manninn. Hún varð að komast und- an, og á hverri stundu gat fólk komið að — þernan, forstjórinn, lögreglan .... Þegar hún hugsaði til lögreglunnar með sverð og vasabækur, vaknaði þrek hennar að nýju, þótt örþreytt væri og hún að því komin að örvænta. Til allrar hamingju var ljósið henni hættulaust. Einu sinni enn stökk hún að hurðinni og reyndi að rífa hana opna með fingrunum, en hún meiddi sig á því og varð að hætta við svo búið. Ef hún átti að sleppa, varð hún að hugsa og leggja sig alla fram, ekki rasa að neinu, heldur gæta allrar varúðar. Hún skoðaði læsinguna nákvæmlega. Þar var ekkert skráargat, heldur renniloka, svo að gesturinn gat lokað hurðinni að inn- an, en henni var ekki hægt að loka að utan. Æ — hvers vegna hafði veslings dauði maðurinn ekki lokað hurðinni kvöldið áð- ur? Þá hefðu engin vandræði af þessu hlot- izt. Hún gat séð í endann á stálteininum; hann var hér um bil hálfan þumlung inni í gatinu. Ef einhver gengi um göngin fyrir framan, hlaut hann að taka eftir því, að handfangið stóð alltof mikið út þeim meg- in! Hún dró hárnál úr hári sér og reyndi að krækja henni í teininn, en hafði ekki annað upp úr því en að hann ýttist heldur lengra inn. Þá fann hún greinilega, að hún fölnaði upp, og hana svimaði. Hún var að berjast fyrir lífi sínu og mátti ekki gafast upp. Hún rásaði um her- bergið eins og villidýr í gildru í leit að ein- hverri smugu til undankomu. Engar svalir voru fyrir glugganum, og niður á götuna var fimm lofthæða fall. Liðið var fram undir dögun, og búast mátti við, að í gisti- húsinu og borginni færi fólk að rumska; áður en svo yrði, varð hún að sjá sér borg- ið. Ennþá einu sinni varð henni litið á læs- inguna og síðan á muni dauða mannsins, rakvélina hans og skeggburstann, ritföng- in, penna, blýanta, strokleður og lakk .... Lakk! Neyðin kennir naktri konu að spinna. Enginn vafi er á því, að Millicent Brace- girdle, sem aldrei á ævi sinni hafði gert

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.