Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 45
N. Kv. HÚN ÞAGÐI YFIR ÞVÍ 31 dó hér í næsta herbergi .... sjálfsmorð, halda þeir; eða var það hjartaslag? .... Samvizkubit — kannske taugaáfall .... Sögðuð þér kaffi með brauði, madame?“ „Nei, þakka yður fyrir, góða .... að- eins bolla af tei .... sterku tei.“ „Parfaitement, madame“ Stúlkan gekk út, og litlu síðar kom þjónn inn í herbergið með te á bakka. Þá gekk al- veg fram af henni; henni fannst það svo dónalegt af karlmanni — þótt hann væri ekki annað en þjónn — að fara inn í her- hergi kvenmanns. Áreiðanlega var nokkuð ' því, sem prófasturinn hafði sagt; þeir voru sannarlega skrýtnir, þessir frönsku, og höfðu sitt lag á hlutunum. Svona hagaði sér enginn í Easingstoke. Hún breiddi betur of- an á sig, en þjónninn virtist vera alveg kærulaus um allt, lagði bakkann frá sér og fór út. Þegar hann var farinn, settist hún upp og sötraði teið; henni hlýnaði við það, og sólskinið létti lienni í skapi. Búizt var við, að skipið með mágkonuna legðist að hafnargarðinum um klukkan eitt. Þá hafði hún tíma til að húa sig þægilega, skrifa hróður sínum og ganga niður í skipakví- arnar. — Mannvesalingurinn, hann hafði þá verið morðingi, sem hjó sundur fórnar- dýr sín .... og hún hafði verið inni hjá honum um nóttina! Slíkir menn voru sann- arlega —- — ja, hvernig átti að orða það? Samt sem áður þótti henni betur en ekki, að hún hafði verið þarna, kropið á kné og heðizt fyrir við rúmið hans. Líklega hafði enginn gert það nokkurn tíma. Það var svo erfitt að dæma um fólk. Eitthvað gat svo sem verið bogið við þetta. Verið gat, að hann hefði alls ekki myrt neinn kvenmann. Menn eru oft sakfelldir að ósekju. Ef lög- reglan hefði fundið hana þarna inni í her- berginu klukkan þrjú um nóttina, þá hvað? Allt er undir því komið, hvað í hjartanu la-ærist. Svo lengi lærir sem lifir. Hafði hún ekki lært, að hægt er að biðjast eins al- varlega fyrir liggjandi undir rúmi og krjúp- andi við það? .... Mannvesalingurinn! Hún þvoði sér og klæddist og gekk hægt niður í skrifstofuna. Engin sá hún merki þess, að hinum gestunum væri neitt órótt. Að líkindum vissi enginn þeirra um atburð- inn um nóttina nema hún sjálf. Hún settist við skrifborð, hugsaði sig vel um og fór að skrifa: Elskulegi bróðir minn! Eg kom hingað í gærkvöld eftir mjög skemmtilega ferð. Allir voru mér mjög góð- ir og kurteisir, og forstöðumaðurinn vakti eftir mér. Eg var nærri búinn að týna gler- augnahúsunum mínum í gistihúsbílnum, en góður, gamall herramaður fann þau og skil- aði mér þeim. Fólkið hérna er einstaklega viðkunnanlegt, en maturinn er einkennileg- ur, hvorki óbrotinn né hollur. Klukkan eitt fer ég ofan að höfn til að taka á móti Annie. Hvernig hefur ykkur liðið, elslcu bróðir? Ég vona, að þú hafir ekki neitt kast fengið aftur af lungnakvefinu. Gerðu svo vel að segja henni Lizzie, að mér hafi dottið það í hug í lestinni á leið- inni hingað, að stóra leirkrukkan með ald- insafanum, sem frú Hunt bjó til, er á bak við tómu blikkdósirnar í efstu hillunni á skápnum næst vagnskúrnum. Mig langar til að vita, hvort frú Butler gat komizt á kvöld- sönginn, þegar til kom. Þetta er snyrtilegt gistihús, en ég býst við, að við Annie gist- um í „Grand“ í nótt, af því að það er full- ldjóðbært í svefnherbergjunum hérna. Svo hef ég, kæri bróðir, ekki fleira að segja fyrr en ég kem heim. Gættu vel heilsunnar. — Þín elskandi systir Millicent,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.