Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 46
32 HÚN ÞAGÐI YFIR ÞVÍ N. kv. Nei, hún gat ekki sagt prófastinum frá því, hvorki í bréfinu né þegar hún kæmi heim aftur. Hún var sannfærð um, að það mundi aðeins hryggja hann. I þessu kyn- lega, útlenda umhverfi hafði þetta vel get- að gerzt, en ef farið væri að segja frá eins cfgakenndum atburðum í Easingstoke, þá yrði frásögnin beinlínis .... klúr. Ekki varð fram hjá því gengið, að hún hafði dvalizt í herbergi ókunns manns að nætur- lagi. Hvort sem hann var prúðmenni eða illvirki, jafnvel hvort sem hann var lífs eða iiðinn, þá virtist það ekki milda hugar- hrellingar hennar, eða réttara sagt ekki geta orðið til annars en að setja leiðinlega og óþarfa snurðu á innilega sambúð þeirra systkinanna. Ef hún segðist hafa farið í baðherbergið, villzt á dyrum, handfangið á hurðinni dottið af, hún orðið of hrædd til að vekja manninn eða æpa, heldur skriðið undir rúmið-------jajújú, allt var það dag- satt. Prófasturinn mundi trúa henni, en í Fasingstoke-sókn mundi enginn geta látið sér þetta skiljast. Það mundi fjarlægja þau hvort öðru, rétt eins og hún hefði atazt ein- hverjum óþverra, sem gerði hana vart í hús- um hæfa. Hún setti upp hattinn og gekk út til þess að leggja bréfið í póst; hún vantreysti bréfahirðingu í gistihúsum; óvíst var, hver hefði hönd á bréfunum og hvort þau bær- ust rétta leið. Flún lagði leið sína til aðal- pósthússins í Bordeaux. Glaðasólskin vár og gaman að ganga inn- an um þetta hjáleita og síkvika fólk. Kaffi- húsin voru full af masandi körlum og kon- um, blómasölupallar á hverju strái, og svo var einhver einkennilegur þefur — af hverju? Salti, sjóbrælu eða viðarkolum? .... Flokkur hermanna lék á hljóðfæri á torginu .... mjög svo fjörugt. Alls staðar var líf í tuskunum, ys og bægslagangur. „Ég var í herbergi ókunnugs karlmanns í nótt.“ Millicent Bracegirdle yppti öxlum, taut- aði niður í barm sér og herti gönguna. Hún kom að pósthúsinu og fann stóru málmplöt- una með raufinni fyrir bréfin. Fyrir ofan hana stóð fullum stöfum R. F. Þar sá hún loksins greinilegt innsigli ríkisins! Þegar hún var að stinga bréfinu inn í raufina, roðnaði hún ofurlítið, hvort sem það var vegna þess, hvað heitt var í veðri eða hún hafði gengið fullhratt. Hún lét bréfið detta inn fyrir, en svo stakk hún hendinni inn í raufina og þreifaði um hana fram og aftur, til þess að fullvissa sig um, að þetta væri enginn gallagripur, sem komið gæti í veg fyrir, að bréfið bærist með réttum skilum. Nei, það hafði dottið niður á sinn stað heilu og höldnu. Svo andvarpaði hún feginsam- lega og hélt áfram leiðar sinnar niður að hafnarkvínni, til þess að taka á móti mág- konu sinni frá Paraguay. /. R. þýddi. Visiir Úr rímu um drukknun Eggerts Ólafsson- ar eftir Árna Þorkelsson frá Meyjarlandi (um 1730—1801): Skúmaði froða skerjum á, skall á súðum alda, reisti boða bylgjan há og bauðst að troða land upp á. Grenjaði úður, glotti mar, geisaði norðan Kári, orgaði lúður Ægis þar, ógeðprúður nokkuð var. Og svo er staka Árna Böðvarssonar á Ökrum (1713—1777); Ætti ég ekki, vífaval, von á þínum fundum, leiðin eftir Langadal löng mér þætti stundum,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.