Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 49

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 49
N.Kv. 35 Rudolf Herzog: 8agt til s^ndanna — Smásaga — Theophil Quitt var orðinn sjötugur. Hann haíði hærzt og hvítnað í þjónustu lítillar borgar í Meklenborg og aldrei hreyft sig þaðan, frá því er hann lauk háskólagöngu sinni eftir langt nám og lagði leið sína út í borgaralegt líf. Hann hafði lesið guðfræði og mátti gera sér einhvern mat úr þekkingu sinni, en þá var fátt um preststöður þar heima fyrir, og ef hann vildi ekki svelta til bana í hið eftir lausu kalli, þá varð hann að svipast eftir einhverri atvinnu, sem skyld var fræðigrein lians. Hann sótti því um kennarastöðu við gagnfræðaskólann og tók um leið að sér þá skyldu, að halda morgun- messu klukkan sex á hverjum sunnudegi. Þannig leið liver áratugurinn á fætur öðrum. Theophil Quitt var orðinn yfirkenn- ari, og heilar kynslóðir höfðu grætt á vizku hans í skólanum — eða þá hitt heldur; mönnum kom ekki saman um það. Hann var einstakt gæðablóð, vildi engin höft leggja á írjálsræði unglinganna, og þess vegna komst sá bragur á kennslustundir hans, sem þótti í meira lagi alþýðlegur. Góðgirni hans gat ekki séð neitt athugavert við að leyfa nemendunum að fara úr jakka og vesti á molluheitum sumardögum og sitja sjálfur á skyrtunni í kennarastólnum, eða að einhver bekkurinn, sem hafði staðið sig sérstaklega vel, gæddi sér sameiginlega á ölglasi í hit- anum. Að hans dómi lærðu strákarnir nóg fyrir lífið í lítilli borg. Það var því engin furða, að hann hlaut heiðursnafnið „frændi“ og var alþekktur í borginni und- ir því nafni. Quitt frændi var farinn að kenna ellinn- ar. Dag eftir dag hafði hann rækt skóla sinn og morgunmessuna á hverjum sunnudegi — eða réttara sagt ekki, því að af því að smá- borgararnir voru of latir til að skríða und- an hlýjum dúnsængunum eftir erfiði vik- unnar, þá voru sjaldan þrír sarnan komnir til morgunmessunnar klukkan sex, og fyrir íærri þurfti Quitt frændi ekki að láta til sín heyra. Ef svo ólíklega vildi til, að kirkju- gestir fylltu þessa skilyrðislausu tölu, þá kom hringjarinn á harðaspretti að rúmi Quitts frænda til þess að færa honum þá markverðu fregn. Slíkt hafði þó ekki kom- ið fyrir í manna minnum, og borgin hafði hægt og hljóðlaust gleymt morgunmessunni. Þegar klukkunum var hringt, varð mönnurn aðeins að orði: „Herra trúr — klukkan orð- in sex! Jæja, hezt að bylta sér á hina hlið- ina.“ — Á sjötugasta afmælisdegi Quitts frænda var borgarráðið saman kornið til alvarlegr- ar ráðstefnu; rætt var um eftirlaunaveit- ingu honum til handa, og með fullum laun- urn átti hann að fá að njóta maklegrar hvíldar. Tillagan var samþykkt —— gegn einu mótatkvæði. Friedrich bakarameistari, sem gat ekki sætt sig við að Quitt frænda hafði ekki tekizt að gera „lærðan mann“ úr slánanum, elzta syni hans, hafði greitt at-- kvæði á móti honum. Samt varð það því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.