Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 52

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Blaðsíða 52
38 SAGT TIL SYNDANNA N. kv. mun að gera hrifnæman fyrir sannri hugg- un. Svo var klukkunum hringt í annað sinn. Þá var Quitt frændi einmitt að leggja út af illkvittni, meiðyrðum og virðingarleysi fyr- ir hvítum hærum æruverðugrar elli. Fyrstu kirkjugestirnir utan úr sveit voru farnir að tínast inn í kirkjuna, og á hverri stundu mátti búast við, að kunnugir kæmu. Það var líkast því sem bakarameistarinn sæti á nál- um eða brennandi glóðum, hann tók út heljarkvalir og svitinn draup niður af enni hans; honum fannst hann vera svo hörmu- lega lítill, hlægilegur og yfirbugaður. „Vér sláum botninn í í dag,“ mælti Quitt frændi; tíminn heimtar það. Ekki er það ræktarleysi, sem tálmar því, að ég geti tryggt yður hjálp mína lengur. A sunnudag- inn kemur höldum vér áfram, þar sem vér höfum numið staðar í dag.“ Morgunmessunni var lokið. Eins og veiði- hundur, sem sleppt er úr bandi eftir langa togstreitu, skauzt bakarameistarinn eftir framkirkjunni út í dyrnar. A eftir honum Iialtraði konuskepnan eftir strætinu, til þess að láta hann vita, að upp frá því afsalaði hún sér brauðkörfunni. En heima fyrir undraðist námssveinninn, að meistarinn \irti hann ekki viðlits, hvað þá að hann Iöðrungaði hann, heldur lokaði sig inni all- an daginn og neytti hvorki matar né drykkj- ar. Quitt frændi mátti sofa af sér næstu morgunmessu. Tryggu kirkjugestirnir þrír höfðu afsalað sér frekara bænahaldi af frjálsum vilja, og þar við sat framvegis. Gamli prestlærði yfirkennarinn fékk að njóta eftirlauna sinna á elliárunum í næði og friði. Eftir sem áður drekkur hann kvöld- glasið sitt við eigið borð í ráðhúskjallar- anum, þar sem Friedrich bakarameistari gætir þess með einstakri skyldurækni, að Quitt frændi þurfi ekki að þoka úr heiðurs- — (liaiiuui^ögnr — Á sjó. Sjómaður nokkur á langleiðum var unn- ustu sinni heima fyrir ákaflega trúr og leit aldrei við nokkrum kvenmanni, þar sem hann kom í höfn. Því miður var unnustan ekki eins föst í rásinni og hann, því að eitt sinn, er hann kom til Shanghai í Kína, beið hans þar uppsagnarbréf frá henni. „Eg er lofuð öðrum,“ skrifaði hún, „og nú þakka ég þér fyrir góða viðkynningu og bið þig að senda mér ljósmyndina af mér, sem ég gaf þér í fyrra —“ o. s. frv. Sjómannin- um varð svo mjög um þetta, að félagar hans tóku sig saman um að hefna fyrir tryggða- rofin. Þeir söfnuðu saman öllum þeim stúlkumyndum, sem þeir náðu í og sendu þær stúlkunni ásamt mynd hennar sjálfrar, en bögglinum fylgdi þessi miði: „Þakka fyrir bréfið frá þér. Gerðu svo vel að taka myndina af þér úr bunkanum; ég man því miður ekki með vissu, hver myndin er af þér — og sendu mér svo hinar aftur.“ Einkennilegt róðlag. Kona rétti manni sínum lnúgu af ó- greiddum reikningum. Hann blaðaði í þeim --*og varð að orði: „Er það nú ráðlag! Við eyðum peningum, sem við eigum ekki, í dót, sem við höfum ekkert með að gera, til þess að miklast af í augum fólks, sem við skiptum okkur ekkert af.“ sessinum við háborðið, ef einhver ókunn- ugur maður skyldi rekast þangað af til- viljun. Og í borginni litlu gengur annars allt sinn vanagang. /. R. þýddi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.