Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Page 53

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Page 53
N. Kv. 39 C. S. Forester: Brown Iiism |iruuÍMkisi Jónas Rafnar þýddi. Framh. Líitz skipherra þurfti ekki annað en líta inn í lónið til að sannfærast um, að þarna var hið æskilegasta skipalægi; þar var hlé fyrir öllum vindum, og hann hugsaði til þess með tilhlökkun, að innan fárra daga yrði viðgerð á skipinu lokið, ferðinni hald- ið áfram yfir Kyrrahaf og kaupskipaflota Breta sökkt unnvörpum. Hann fór mjög hægt og varlega inn mynnið, því að leiðin var ekki nákvæmlega könnuð, sendi bát á undan og lét mæla dýpið jafnóðum. „Ziet- hen“ skreið gætilega inn á milli klettanna og komst heilu og höldnu inn á lónið. Þar var kæfandi hiti, því að sólin hellti brenn- heitum geislum niður á vatnsflötinn og klettana, og enginn goluþytur barst þangað utan frá. „Ziethen“ vék sér afar hægt til hliðar og lét stafnakkerið falla; það nam við botn æðilangt frá miðju lónsins og mesta dýpinu; síðan var skipinu hagrætt með gætni og akkeri látið falla frá skutnum. Véi og nákvæmlega var að öllu farið, eða það fannst Brown, þar sem hann stóð við eitt skotaugað og horfði á með mikilli eftirtekt. Jafnskjótt sem „Ziethen“ var lagztur, íók skipshöfnin til starfa. Hættulegt gat verið að liggja lengi í landsýn, þótt óbyggð væri allt í kring, og varð því að hafa hraðann á, svo að „Ziethen“ kæmist út á rúmsjó, gæti gegnt ætlunarverki sínu og neytt vopna sinna, ef þörf gerðist. Kyndararnir tæmdu kolarúmin á stjórnborða og færðu kolin yfir á bakborða. Eins var farið að við skotfæra- geymsluna, og jafnvel þyngstu fallbyssurn- ar voru með mestu erfiðismunum færðar þangað líka. Það er enginn leikur að halla vígbúnu herskipi á hlið, og færa þarf hundruð lesta til að ná eins fets halla, þeg- ar svo stendur á; getur það auk þess verið mjög varasamt, svo að engu megi muna, þegar skipið er brynvarið. Var því engin furða, þótt „Ziethen“ væri full þörf á skjól- inu við Resolution, á meðan lappað var upp á hann. Þegar Brown fékk að fara upp á þilfar undir gæzlu hjúkrunarmannsins, tók hann grandgæfilega eftir öllum aðstæðum. Hann horfði upp á snarbrött klettaböndin og fann, að þilfar skipsins hallaðist meir og meir. Ef óvinir með sex þumlunga fallbyssu væru þarna uppi í klettunum, þá væri úti um „Zi- eíhen“! Þilfarið yrði rutt með fám skotum og viðgerðarmönnunum á stjórnborða yrði ekki hlíft stundinni lengur, ekkert yrði að gert og „Ziethen“ mundi annað hvort sökkva eða að verða að flýja burt í skyndi! Idann athugaði aftur gætilega hrjóstruga klettana. Fjarlægðin var naumast meiri en íjórðungur mílu — innan riffil-skotfæris! R iffilskotfæri! Brown datt nokkuð í hug, og blóðið tók að sjóða í æðum hans. Hann sneri sér undan, svo að gæzlumann hans grunaði ekki neitt. Hann starði stöðugt upp í klettana og velti fyrir sér fyrirætlun sinni; hann fann engar fráleitar veilur í henni. Þegar Brown kom aftur undir þiljur, leit hann snöggvast inn til hinna særðu félaga sinna og fór svo að bollaleggja áform sitt. Ef hann gæti tafið viðgerðina á „Ziethen“

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.